Háskóli Íslands student.is

AIESEC

AIESEC

Opnunartími skrifstofnu:

Skrifstofan er opin alla virka daga frá

10:00- 18:00

AIESEC

Heimilisfang

Sími

Netfang

 

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Starfaskipti

Printer-friendly version

Starfsþjálfun

Starfaskipti er ein sú lærdómsríkasta upplifun sem AIESEC hefur upp á að bjóða og tengir fólk á alþjóðlegum vettvangi á einstakan hátt. Á hverju ári takast um 3.500 manns á við það krefjandi verkefni að búa og vinna í framandi landi. Fjöldinn frá Íslandi er misjafn en síðustu ár hafa um 5-10 manns farið ár hvert. Störfin sem AIESEC hefur upp á að bjóða eru mjög fjölbreytt og framboðið töluvert en þeim hefur verið skipt í 4 svið til þess að einfalda leit og hjálpa fólki við að velja það sem tengist þeirra eigin námi. Þau kallast stjórnun (e. management) , þróun (e. development), tæknilegt (e. technical) og kennsla (e. education).

Ferlið

Umsókn og val – Eftir að þú hefur sent okkur umsókn tökum við viðtal við þig til þess að fá betri vitneskju um eftir hverju þú ert að leita . Þetta er einnig gott tækifæri fyrir þig að fá svör við öllum þínum spurningum hvað varðar starfaskipti.

Undirbúningur – Við hjá AIESEC hjálpum þér í gegnum allt ferlið og erum alltaf til staðar þegar þig vantar aðstoð. Við veitum einnig þjálfun og undirbúning fyrir að búa í öðru landi.

Finna fyrirtæki og vinnu – Þú færð aðgang að og þjálfun í að leyta í gagnagrunni AIESEC sem hefur að geyma allar lausar atvinnustöður hverju sinni. Því sveigjanlegri sem þú ert, því auðveldara reynist að finna starf.

Þegar út er komið – AIESEC meðlimir í því landi sem þú dvelur eru þér til halds og trausts og aðstoða þig við að koma þér fyrir og veita þér tækifæri til þess að taka þátt í menningu og félagslegu starfi.

Heim aftur - Þegar heim er komið aðstoðum við þig við að aðlagast aftur íslensku umhverfi eftir þörfum. Við verðum einnig til staðar allan tímann á meðan þú ert úti og verðum reglulega í samskiptum við þig. Ef eitthvað bjátar á er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur eða tengilið þinn.

Hvað er í boði?

Management Traineeship- tengist viðskiptum, hagfræði, bókhaldi, markaðsfræði og einhver stjórnun.

Development Traineeship - tengist aðallega störfum í þróunarlöndum og fæst við ýmis konar þróunar- og samfélagsstörf.

Technical Traineeship – tengist aðallega stjórnun, þróun á neti, hugbúnaði, gagnagrunnum auk verkfræði.

Educational Traineeship – tengist kennslu, þróun kennsluefnis og fleira tengt kennslu. Kennsluréttinda er krafist fyrir mörg þessi störf en einnig eru í boði margar stöður við að kenna ensku í Mið– og Suður–Ameríku sem flestir geta sótt um án kennsluréttinda.

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Alþjóðasam-félagið: Æfa sig í heimsyfirráðum-.

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...