Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði
Er óvirkur félagi.
Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.
Já, örlítið.
Maya Staub, þýska.
Nei.
Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.
Er skráður.

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild á hádegisspjalli sem Kennslumiðstöð stóð fyrir í dag. Það bar yfirskriftina ,,Facebook: tæki eða truflun"? Silja segir að notkun á facebook í einu af námskeiðum hennar hafi leitt til meiri virkni nemenda í kennslustundum.
Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og Hildur Óskarsdóttir til að ræða það sem efst var á baugi í þjóðfélagsumræðunni.
Dr. Helgi Gunnlaugsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands var einn af gestum sem fluttu erindi á fundi sem var haldinn miðvikudaginn 1. febrúar sem bar nafnið Refsistefna í fíkniefnamálum. Meðal annars var rætt viðhorf almennings og stjórnvalda til fíkniefnabrota, markmið og fyrirkomulag núverandi löggjafar og hvort sú löggjöf hafi skilað tilætluðum árangri. Hlusta á viðtal hér.
Geir Sigurðsson er dósent í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands. Hann segir gjöf kínverska menntamálaráðuneytisins á íslensku kennsluefni umbylta kínverskukennslu.
Marga nemendur dreymir um að taka hluta af námi sínu erlendis. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins stóð á dögunum fyrir kynningu á skiptinámi til Evrópu. Fréttamaður Stúdent.is ræðir hér við Rúnu Vigdísi Guðmarsdóttur, verkefnisstjóra.
Kjörið, sem áður hét Hanaslagur, fór fram í hádeginu í dag en það er kosningafundur á vegum Politica, nemendafélags stjórnmálafræðideildar. Þar héldu forsvarsmenn fylkinganna tveggja, Vöku og Röskvu stutta framsögu og sátu svo fyrir svörum. Jökull Torfason, formaður Politica, ræddi um fyrirkomulag fundarins.
Skráningagjöld við Háskóla Íslands munu hækka úr 45 þúsund krónum í 60 þúsund krónur á komandi haustmisseri. Student.is heyrði viðbrögð formanns stúdentaráðs við fyrirhugaðri hækkun.
Mannfræðineminn Kristbjörg Una Guðmundsdóttir ætlar að ferðast til Afríku í byrjun febrúar til að upplifa og öðlast aukna reynslu.
Fyrirhugað er að taka upp inntökupróf í grunnnám í hagfræðideild.
Skil á einkunnum hafa versnað undanfarin ár, þrátt fyrir verklagsreglur sem settar voru árið 2007. Þessar verklagsreglur hafa ítrekað verið brotnar og hefur Stúdentaráð nú kvartað yfir einkunnaskilunum til umboðsmanns alþingis. Heimi Hannessyni, hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúa SHÍ, finnst hvimleitt að það þurfi að fara þessa leið en er vongóður um að hún beri tilætlaðan árangur.