Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði
Er óvirkur félagi.
Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.
Já, örlítið.
Maya Staub, þýska.
Nei.
Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.
Er skráður.

Í september 2009 var byrjað að spila skilaboð til nemenda yfir hádegistímann í Hámu. Student.is fékk að heyra skilaboðin og ræða málið við Steinunni Eggertsdóttur, Eldhússtýru Hámu, og Önnu Birnu Halldórsdóttur, Þjónustustjóra á Þjónustuborðinu á Háskólatorgi þar sem hugmyndin að skilaboðunum kviknaði.
Skuggathing.is er pólitískur rökræðuvettvangur sem Gunnari Grímssyni, öðrum forsvarsmanna vefsins, finnst að háskólafólk eigi hiklaust að kynna sér. Student.is ræddi við Gunnar um nýja vefinn.
Í háskólaumræðunni þessa vikuna var rætt um myndbandið frá Írak sem Wikileaks birti á dögunum, hugmyndir stjórnvalda um vegtolla, nýjan Þjóðarpúls Gallup, gosið á Fimmvörðuhálsi og margt fleira. Gestir voru Daði Rúnar Pétursson, nemi í opinberri stjórnsýslu, Orri Freyr Rúnarsson, nemi í stjórnmálafræði og Tinna Björg Sigurðardóttir, nemi í stjórnun og stefnumótun. Guðrún Ásta Guðmundsdóttir sá um stjórn umræðanna.
Keppninni um blóðgjafabikarinn er nú lokið og voru úrslitin tilkynnt í lokahófi Blóðgjafamánaðarins sem fram fór í gær, fimmtudaginn 8. apríl.
Það færist oft fjör í leikinn þegar rætt er um stórmál eins og Evrópusambandið, og mögulega aðild Íslands að því, og var háskólaumræðan þessa vikuna engin undantekning í þeim efnum. Viðmælendur að þessu sinni voru þeir Heimir Hannesson, nemi í stjórnmála- fræði, Hjörtur J. Guðmundsson, nemi í Alþjóðasamskiptum, og Vilhjálmur Andri Kjartansson, nemi í Lögfræði. Umræðunni stjórnaði Guðrún Ásta Guðmundsdóttir.
Nú þegar langt er liðið á aldarafmælisár Háskóla Íslands er loks komið að hápunkti hátíðarhaldanna, afmælishátíðinni sjálfri, en hún verður haldin í Hörpunni á laugardaginn næstkomandi klukkan þrjú. Fréttamaður student.is fékk að heyra í Sæunni Stefánsdóttur, verkefnisstjóra aldarafmælisins, í tilefni þessa, til að forvitnast aðeins um hátíðarhöldin.