Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Fyrirheit um leikskólapláss

Formaður leikskólaráðs Ragnar Sær Ragnarsson er bjartsýnn á leikskólamál borgarinnar í ár.  Hann telur að hægt sé að koma til móts við foreldra leikskólabarna við Háskóla Íslands í haust með mun betri og öflugri hætti en áður og einnig munu yngri börn komast fyrr inn í leikskólann en áður.


1:33 minutes (1.33 MB)

Fjarnám er góður kostur

Þórunni Þórólfsdóttur kennara við Austurbæjarskóla finnst fjarnám hentugur kostur þar sem hún getur stjórnað tíma sínum sjálf og það gerir henni kleift að stunda nám með vinnu.  Hún stundar framhaldsnám í menntunarfræðum við Háskóla Íslands og stefnir að því að ljúka því næsta vetur. 


1:34 minutes (1.44 MB)

Börn og hamingjuegg

Í Háskólaumræðunni í dag var rætt um áherslur í nýlegum barnaskóla. Líðan barna og þroska. Uppeldisaðferðir í Frakklandi og nútímafjölskylduna. Landnámshænur og hamingjuegg settu endahnútinn á viðræður, sem má telja viðeigandi í tilefni páskahátíðar, er nú gengur í garð.  Viðmælendur tengdust allir uppeldisfræðum á einhvern hátt en þeir voru Halldóra Halldórsdóttir, Ólína Ásgeirsdóttir og Ragnar Sær Ragnarsson.


00:36:19 minutes (33.26 MB)

Heillandi rannsóknarstörf

Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

Þau Sara Sigurbjörnsdóttir líffræðingur og Marteinn Þór Snæbjörnsson lífefnafræðingur eru í óða önn að ljúka rannsóknarverkefnum í MS námi sínu við Háskóla Íslands.  Spennandi tímar eru fram undan hjá þeim því nýlega fengu þau inngöngu í eitt besta framhaldsnám í sameindalíffræði í Evrópu, EMBL í Heidelberg í Þýskalandi. Um frábæran árangur er að ræða því aðeins fáir umsækjenda komast inn í doktorsnámið á ári hverju. Í stuttu viðtali segir Sara nánar frá því sem framundan er.


02:35 minutes (2.37 MB)

Margt að gerast í fótboltanum

Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

Vefsíðan fótbolti.net hefur frá stofnun árið 2002 verið í sífelldri sókn en í dag lesa um 60 þúsund gestir efni vefsins vikulega.   Það er um tuttugu prósent aukning frá því á síðasta ári segir Hafliði Breiðfjörð stofnandi síðunnar. Margt er að gerast í íslenska fótboltaheiminum næstu daga en tveir starfsmenn fótboltasíðunnar fylgja íslenska U21 landsliðinu til Skotlands 11. október í seinni viðureign þess um sæti í úrslitakeppni EM í Danmörku á næsta ári.


02:22 minutes (2.18 MB)

Háskólaumræðan

Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

Hefur tillaga mannréttindaráðs um samskipti trúfélaga við leik- og grunnskóla áhrif á skólastarf? Verður skólabörnum meinað að halda litlu jól. Gætu jólahefðir og siðir í skólum lagst af? Hver er uppruni jólanna? Þetta og fleira í Háskólaumræðunni.


0:28:00 minutes (24.02 MB)

Viðburðir

Tenjin í nærmynd

Japönskunemar eru fólk sem hefur aðeins of mikinn áhuga á Japan.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...