Kynfræði, nýtt þverfræðilegt nám á meistarastigi leit dagsins ljós við Háskóla Íslands nú í vor, en markmið námsins er að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á hugtökum, hugmyndafræði, kenningum og aðferðum kynfræða. En hvað læra nemendur í kynfræði? Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur, kynfræðingur og formaður Kynís, Kynfræðifélags Íslands ræddi við fréttamann student.is um kynlíf og námið.
