Vefsíðan fótbolti.net hefur frá stofnun árið 2002 verið í sífelldri sókn en í dag lesa um 60 þúsund gestir efni vefsins vikulega. Það er um tuttugu prósent aukning frá því á síðasta ári segir Hafliði Breiðfjörð stofnandi síðunnar. Margt er að gerast í íslenska fótboltaheiminum næstu daga en tveir starfsmenn fótboltasíðunnar fylgja íslenska U21 landsliðinu til Skotlands 11. október í seinni viðureign þess um sæti í úrslitakeppni EM í Danmörku á næsta ári.
