Opnunartími skrifstofnu:
Skrifstofan er opin alla virka daga frá
10:00- 18:00
Opnunartími skrifstofnu:
Skrifstofan er opin alla virka daga frá
10:00- 18:00
AIESEC
Heimilisfang
Sími
Netfang
Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.
Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.
Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.
Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.
Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.
Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.

"Ég sit á Stansted með litla samloku og vatnsflösku sem kostaði mig samtals 1400 krónur og hugsa hvað það hefur verið undarleg upplifun að fylgjast með falli hamingjusömustu þjóðar í heimi úr fjarska. Síðustu vikuna hef ég verið stödd á AIESEC ráðstefnu þar sem 180 evrópskir forsetar voru samankomnir í litlum bæ í Slóvakíu þar sem ég tók þátt fyrir hönd Íslands. Mitt hlutverk var meðal annars að koma Íslandi á framfæri en ég var oftar en ekki trufluð í lofsræðum mínum um landið með spurningunni: „En bíddu, eruð þið ekki að verða gjaldþrota?"
Ég hef aldrei verið góð í hagfræði og ég veit ekki hvað gerist ef þjóð verður gjaldþrota. Aftur á móti sé ég fram á að fólk þurfi að fara að vinna fyrir sínu héðan í frá. Við getum ekki lengur stólað á það að útskrifast með háskólagráðu og hoppa beint inn í starf með flottum titli í stórum banka. Samkeppnin er að aukast og í kreppunni eru það þeir hæfustu sem lifa af; þeir sem hafa reynslu, þeir sem hafa eitthvað meira á ferilskránni heldur en bara háskólagráðuna og gjaldkerastarfið í Kaupþingi. Það er það sem gerir gæfumuninn þegar út á atvinnumarkaðinn er komið getur verið af ýmsum toga, til dæmis aðstoð við fatlaða nemendur í skólanum, þátttaka í starfi nemendafélags og ýmiskonar félagstörf. Þetta snýst um að koma auga á tækifærin sem eru til staðar og grípa þau áður en einhver annar gerir það.
Það er kominn tími til að hugsa um hvernig þú ætlar að ná forskoti á þá sem munu útskrifast með þér og keppa við þig um störf. AIESEC er eitt af þessum tækifærum sem þú hefur til að ná forskoti en fyrirtæki á borð við Google, Hewitt, DHL, Alcatel keppast um að ráða til sín AIESECera en þetta er aðeins brot af þeim fyrirtækjum sem starfa með okkur.
Hvernig ætlar þú að lifa kreppuna af? Það er eins gott að byrja að hugsa málið strax áður en þú verður henni að bráð."
Bestu kveðjur,
Freyja