Á Stúdentaráðsfundi í september var tekin fyrir skýrsla sem unnin var af vinnuhópi um rafrænar kosningar til Stúdentaráðs. Farið var yfir helstu kosti og galla fyrirkomulagsins, kostnað og aðra mikilvæga þætti. Eftir dágóða umræðu var gripið til atkvæðagreiðslu þar sem allir viðstaddir fundarmenn kusu með því að hefja vinnu fyrir rafrænar kosningar til Stúdentaráðs 2010. Nú er framundan töluverð vinna við gerð kosningakerfis og undirbúning og verður spennandi að sjá niðurstöðuna eftir áramót.
Fjallið í nærmynd
Fjallið er félag jarðvísinda-, landfræði- og ferðamálafræ-inema við Háskóla Íslands.
fleiri nemendafélög

