
Nemendafélag viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands nefnist Mágus og hefur það verið starfrækt síðan 1960. Steinar Atli Skarphéðinsson er formaður Mágus, Ástey Gunnarsdóttir kynningafulltrúi, Gunnar Valur Sigurðsson gjaldkeri, Kristbjörn Hilmir Kjartansson ritari og
Sophie Christin Meyer er alþjóðafulltrúi.
Hvernig varð nafn nemendafélagsins til og hvað þýðir það?
Nafn nemendafélagsins er Mágus. Mágus er úr íslendingasögu og hann var snjall í viðskiptum.
Ef þú ættir að líkja lífinu í ykkar deild við sjónvarpsþátt, hver væri
sjónvarpsþátturinn?
Jersey Shore.
Hvert er mottó nemendafélagsins?
Þetta reeeeddast.
Hver væri draumavísindaferðin?
Ætli það sé ekki að fara heila helgi að skoða spennandi fyrirtæki með starfstöðvar í útlöndum. Eða að fara heila helgi að skoða atvinnureksturinn í kringum Charlie Scheen, helst persónulegt bankayfirlit hans.
Ef félagið ætti lukkudýr, hvað myndi það þá vera?
Lukkudýrið er refurinn og verndarinn Mágús sem er kallaður Rebbi.
Hver er eftirminnilegasta vísindaferðin, sem af er ári?
Vísindaferð í KPMG og Arion banka
Hver er stærsti viðburður ársins hjá félaginu?
Karla- og konu kvöld / Mágus vs. Órator/ Árshátið Mágusar
Hvar slaka nemarnir í deildinni á?
Háskólatorgi eða Odda / á börum bæjarins.
Viðskiptafræðinemar eru:
óprúttnir aðilar.
Ef geymdur eyrir er græddur, hvernig er þá eyddur eyrir?
Kredit.
Finna má Mágus á Facebook: Rebbi Mágus og heimasíðan er magus.hi.is
