Nemendafélag í nærmynd

Curator er félag hjúkrunarfræðinema við Háskóla Íslands. Nemendafélagið hefur verið starfrækt í 15-20 ár. Tæplega 200 manns eru í félaginu, en allir sem stunda nám og eru innritaðir í hjúkrunarfræði eiga kost á því að gerast meðlimir. Stjórnin er skipuð átta hjúkrunarnemum; formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum, auk fulltrúa 1. árs nema. Formaður í ár er Garðar Örn Þórisson, Anna Lísa Finnbogadóttir er varaformaður og Guðrún María Þorbjörnsdóttir er skemmtanastjóri. Curator stendur fyrir opnu húsi hjúkrunarfræðideildar föstudaginn 21. janúar. Viðburðurinn nefnist Á krossgötum og er kynning á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga.

Heimasíða Curators er http://www.curator.is.

 

Við spurðum skemmtinefnd Curators nokkurra laufléttra spurninga.

 

1. Hvernig varð nafn nemendafélagsins til og/eða hvað þýðir það?
Á ensku þýðir curator safnvörður eða forstöðumaður.

 

2. Ef þú ættir að líkja lífinu í ykkar deild við sjónvarpsþátt, hver væri sjónvarpsþátturinn?
House, því að við erum miklu betri að greina sjúkdóma heldur en hann!

 

3. Hvert er mottó nemendafélagsins?
„Have fun or die trying“.

 

4. Hver væri draumavísindaferðin?
Það væri draumur ef Actavis myndi bjóða okkur á eyju í Karabíska hafinu þar sem Ryan Reynolds myndi þjóna okkur og Bradley Cooper myndi gefa okkur táslunudd.

 

5. Ef félagið ætti lukkudýr, hvað myndi það þá vera?
Bleikur fíll með vængi.

6. Hver er eftirminnilegasta vísindaferðin sem af er ári?
Okkur finnst alltaf mjög gaman að fara í Vistor því þar starfa margir hjúkrunarfræðingar og gaman er að læra um fyrirtækið. Auk þess er alltaf hlaðborð sem sæmir konungi eftir á og allir ganga út saddir og sælir (og hressir!).

 

7. Hver er stærsti viðburður ársins hjá félaginu?
Það er alltaf haldið upp á árshátíðina með stæl þar sem skemmtiatriði, matur, dansiball og hressleiki eru í fyrirrúmi!

 

8. Hvar slaka nemarnir í deildinni á?
Það er mjög gott að leggja sig í rúminu fyrir utan stofuna þar sem verkleg kennsla fer fram ef enginn tími er í gangi. Annars klikka rauðu sófarnir ekki. Ef allt er upptekið er gott að fara í lesstofurnar, skella saman tveimur stólum og stilla alarm clock svo þú vaknir fyrir næsta tíma.

9. Hjúkrunarfræðinemar eru aðeins of nettar týpur.

10. Hvort er skemmtilegra: Grey's Anatomy eða Gray's Anatomy?

Auðvitað er Gray´s anatomy skemmtilegra þótt Greys´s sé ágætt þegar ekkert annað er í imbanum.