Soffía þýðir viska

Soffía er nemendafélag heimspekinema. Síðastliðin föstudag var kosin ný stjórn fyrir næsta vetur. Formaður er Edda Sigurðardóttir, ritari er Súsanna Gottsveinsdóttir, gjaldkeri er Sólveig Hauksdóttir, upplýsingafulltrúi er Björg María Oddsdóttir, skemmtanastjóri er Jakob Ævarsson og Soffíubúðarstjóri er Hertha Maria Úlfarsdóttir. Á yfirstandandi skólaári voru 170 nemendur skráðir í heimspeki á BA stigi. Heimspeki hefur verið kennd við Háskólann frá upphafi, en ekki er ljóst hvenær heimspeki varð til sem sjálfstætt BA nám.  Slóðin á heimasíðu Soffíu er  www.soffia.tk

Hvernig varð nafn nemendafélagsins til og hvað þýðir það?
Soffía er dregið af philosophy. Soffía merkir viska.

Ef þú ættir að líkja lífinu í ykkar deild við sjónvarpsþátt, hver væri
sjónvarpsþátturinn?
Ef Egill Helgason væri aðalpersónan í Gossip Girl þáttunum, það væri lífið í Soffíu.

Hvert er mottó nemendafélagsins?
Bibo ergo sum.

Hver væri draumavísindaferðin?
Draumavísindaferðin væri í Akademíu Platóns.

Ef félagið ætti lukkudýr, hvað myndi það þá vera?

Philosoraptor eða Pegasus.

Hver er eftirminnilegasta vísindaferðin, sem af er ári?
Menn voru frekar ánægðir bæði með ferðina í Ring og í CCP.

Hver er stærsti viðburður ársins hjá félaginu?
Árshátíðn eða bústaðarferðin.

Hvar slaka nemarnir í deildinni á?
Í háskólagufunni eða Soffíubúð, kaffistofu heimspekinema.

Heimspekinemar eru:

gangandi vandræðalegar þagnir.

 

Ef ekkert væri til, hvernig liti þá ekkert út?
Ekkert myndi líta út eins og allt.