1. desember er hátíðisdagur stúdenta og af því tilefni verður Stúdentaráð
með hátíðardagskrá í hátíðarsal Aðalbyggingar og Háskólatorgi. Forseti
Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson verður heiðursgestur á Háskólatorgi og
flytur ávarp, ljúffengar veitingar verða í boði og tónleikar með Ragnheiði
Gröndal og Háskólakórnum. Þetta er upplagt tækifæri fyrir stúdenta til að
líta aðeins upp úr bókunum og gera sér glaðan dag!
Dagskráin er eftirfarandi:
*10:00 *
-Hátíðarsamkoma í Hátíðarsal Aðalbyggingar.
-Guðrún Sóley Gestsdóttir flytur ávarp stúdenta.
-Þórarinn Sigurðsson stúdent með söngatriði.
-Emil Harðarson stúdent flytur ljóð.
-Heitt kakó og kökur í boði Stúdentaráðs.
*11:00*
- Stúdentar leggja blómakrans á leiði Jóns Sigurðssonar.
- Þórarinn Sigurðsson syngur fyrir viðstadda.
*12:00*
-Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands verður heiðursgestur og ávarpar
stúdenta á Háskólatorgi.
-Tónleikar með Ragnheiði Gröndal á Háskólatorgi.
-Súpa í boði fyrir gesti Háskólatorgs.
*12:30*
-Háskólakórinn heldur tónleika í anddyri Aðalbyggingar.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest,
Stúdentaráð Háskóla Íslands
----ENGLISH VERSION----
Dear students,
The Student Council would like to invite you to join the Student Day
tomorrow, the 1st of December. The program is following:
10:00 am – Guðrún Sóley Gestsdóttir holds a speech in the University's
main building gala room. Emil Harðarson reads a poem and Þórarinn
Sigurðsson sings. Hot chocolate and cookies.
11:00am- Students put a flower lei on Jón Sigurðsson grave in the old
semetery at Suðurgata.
12:00 am – Free soup and aconsert with Ragnheiður Gröndal at Háskólatorg.
Mr. Ólafur Ragnar
Grímsson, president of Iceland will be guest of honour and hold a speach
for students.
12:30 am - The University Choir has a concert in the main entrance of
Aðalbygging.
Hope to see you there,
The Student Council

