Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Tuesday Febrúar 23, 2010
Start: 23 Feb 2010 17:00

Nýtt Stúdentaráð tók til starfa þann 16. febrúar 2010 og verður fyrsti fundurinn eftir skiptafund haldinn í dag, þriðjudaginn 23. febrúar kl 17.00.

 

Fundurinn verður haldinn í stofu HT 300 og eru allir áhugasamir nemendur eindregið hvattir til að mæta og fylgjast með.

 

Bestu kveðjur,

Jens Fjalar Skaptason

Formaður Stúdentaráðs HÍ

Tuesday Mars 02, 2010
Start: 2 Mar 2010 19:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30.

Þriðjudaginn 2.mars er sýnd Surplus:Terrorized into being consumers

 

Wednesday Mars 03, 2010
Start: 3 Mar 2010 12:30
End: 3 Mar 2010 13:00

Á háskólatónleikum miðvikudaginn 3. mars nk. leika Dagný Björgvinsdóttir og Helga Þórarinsdóttir verk eftir Þórð Magnússon og Luise Adolpha Le Beau.

Tónleikarnir hefjast kl. 12.30.

 

Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur HÍ.

At the University Concert on Wednesday, March 3rd, Dagný Björgvinsdóttir, piano, and Helga Þórarinsdóttir, viola, offer works by Þórður Magnússon and Luise Adolpha Le Beau.

 

Wednesday Mars 10, 2010
Start: 10 Mar 2010 12:30
End: 10 Mar 2010 13:00

Á háskólatónleikum miðvikudaginn 10. mars nk. frumflytur Áskell Másson eigið verk ásamt DUO HARPWERK, þeim Frank Aarnink slagverksleikara og Katie Elizabeth Buckley hörpuleikara.

 

Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur Háskóla Íslands.

At the University Concert on Wednesday, March 10th, Áskell Másson, percussion, with DUO HARPWER, Frank Aarnik, percussion, and Katie Elizabeth Buckley, harp, offer for the first time a new composition by Áskell Másson.
The concert begins at 12.30 and is expected to last for appr. 30 minutes.

Tuesday Mars 16, 2010
Start: 16 Mar 2010 19:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30.

 

Þriðjudaginn 16.mars er sýnd Get rid of yourself

Innsýn inn í stofnanalausa andstöðu án persónueinkenna sem hafnar ríkjandi stjórnmálum.

 

Wednesday Mars 17, 2010
Start: 17 Mar 2010 12:30
End: 17 Mar 2010 13:00

Á háskólatónleikum miðvikudaginn 17. mars nk. frumflytur Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari tvær eigin Glefsur, Sléttubönd og Brælu. Þær Una og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari spila Svíta í gömlum stíl (1972) eftir rússneska tónskáldið Alfred Schnittke.

 

Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur HÍ.

 

Start: 17 Mar 2010 13:15
End: 17 Mar 2010 14:15

Eiga háskólanemendur að lifa á loftinu – Málstofa 17. mars um réttindi nemenda í sumar!

  • Vissir þú að það er óvíst hvort að nemendum við Háskóla Íslands stendur til boða lánshæf sumarnámskeið í sumar?
  • Vissir þú að réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta hefur verið
    afnuminn?  Vissir þú að óljóst er hvort sveitafélögin veiti námsmönnum
    fjárhagsaðstoð yfir sumartímann þrátt fyrir framfærsluskyldu?

 

Tuesday Mars 23, 2010
Start: 23 Mar 2010 12:30
End: 23 Mar 2010 13:00

Á síðustu háskólatónleikum skólaársins miðvikudaginn 24. mars nk. frumflytja Pamela De Sensi, flautuleikari, og slagverksleikararnir Eggert Pálsson og Frank Aarnink ný verkeftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Antonio Cocomazzi og í fyrsta skipti hér á landi verkið Iceland eftir Anthony Holland. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona er sögumaður í verkinu.

 

Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur Háskóla Íslands.

 

Syndicate content

Viðburðir

Orator í nærmynd

 

-Sigurður Gústavsson, formaður Orators, og grágæsin.

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...