Á þessu ári heldur Bubbi upp á 30 ára útgáfuafmæli sitt. Það var 17. júní
árið 1980 að hann gaf út sína fyrstu plötu, Ísbjarnarblús.
Í tilefni þessara merku tímamóta hefur Bubbi ákveðið að fara aftur í
ræturnar og heimsækja menntastofnanir um allt land. Þar mun hann koma fram
í hádeginu með kassagítarinn og spila nokkur lög af ferli sínum. Hefst
þessi tónleikafer hans hér á Háskólatorgi á morgun (miðvikudag) kl 12:00
Hádegistónleikaröðin hefur hlotið nafnið Rætur og vísar beint i tilgang
ferðarinnar, þ.e.a.s að fara aftur í ræturnar.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.prime.is og www.bubbi.is einnig
má senda rafpóst á prime@prime.is
_____ENGLISH VERSION_____
Tomorrow will Icelandic musician Bubbi Morthens play at Háskólatorg at
noon. Bubbi is celebraiting his 30 years musical anniversary. Please come
and listen to one of the Iceland finest musician play his good music.

