Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


69

Printer-friendly version
30 Mar 2010 19:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30.

 

Þriðjudaginn 30.mars er sýnd 69

Þegar engin vilji er til viðræðna og lög yfirvaldsins eru notuð til að eyðileggja eitthvað sem þér er kært, þá er kominn tími til þess að brjóta lögin. Árið 1982 var tómt hús við Jagtvej 69 í Kaupmannhöfn tekið yfir.

 

Eftir baráttu við borgaryfirvöld var hústakan síðar leyfð og húsið betur þekkt sem Ungdomshuset. Þetta var sameiginlega rekin miðstöð fyrir menningar- og grasrótarstarfsemi og einn af hornsteinum samfélags í andstöðu við ofríki einsleitninnar. Húsið var þyrnir í augum yfirvalda sem svo seldu húsið til niðurrifs. Fylgst er með síðustu sex mánuðum hússins 2006 – 2007 og baráttunni gegn niðurrifinu. Hverjir voru þetta og hvaða hugmyndir bjuggu þarna að baki?

 

http://www.69filmen.dk/

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...