Alþjóðadagur í Háskóla Íslands verður haldinn 5. nóvember á Háskólatorgi.
Alþjóðadagur í Háskóla Íslands verður haldinn 5. nóvember á Háskólatorgi.
Á deginum verða kynntir möguleikar á námi erlendis, bæði skiptinámi og öðru námi. Háskóli Íslands á í samstarfi við hundruð skóla erlendis og fjölmargir stúdentar skólans fara til náms erlendis í lengri eða skemmri tíma. Nám við skólann opnar því ótal dyr út um alla veröld og markmið dagsins er að kynna þessa möguleika.
Dagskrá:
14 - 14:10 Háskólatorg
Opnun Alþjóðadags
Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Anders Ljunggren, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi
14:15 - 17:30 Háskólatorg
Kynningarborð frá einstökum löndum og íslenskum aðilum
14:15 - 15:45 HT 300
Nám í Evrópu
Kynning á skiptinámi og námi á eigin vegum í Evrópu
Kynning frá Norræna félaginu
Frásagnir stúdenta
Kynning á starfsemi ESN í Evrópu
16:00 - 17:00 HT 300
Nám utan Evrópu
Kynning á skiptinámi og námi á eigin vegum víða um heim
Frásagnir stúdenta
Alþjóðleg matarveisla
Að formlegri dagskrá lokinni bjóða ESN Reykjavík og erlendir skiptistúdentar gestum til alþjóðlegrar matarveislu á Háskólatorgi. Matarveislan er kjörið tækifæri fyrir þá sem hyggja á nám erlendis til þess að hitta stúdenta frá því landi þangað sem förinni er heitið og kynnast menningu þess. Allir eru velkomir og Hámubarinn verður opinn.
