Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.
Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30.
Næsta þriðjudag þann 16.febrúar kl 19:30 sýnir Öskra! - Punishment Park
Mynd eftir Peter Watkins (1971).
Í lok sjöunda áratugarins var settur upp nýr dómstóll í Bandaríkjunum sem taka átti á andófsfólki. Fólk gat valið venjulega fangelsisvist eða freistað þess að komast í gegnum Punishment Park sem m.a. var liður í þjálfun lögreglunnar.
Fylgst er með réttarhöldum og liðsmönnum þjóðvarnarliðs, lögreglu og sakborningum í gegnum ferli þessa dómstóls. Beinskeytt og pólitísk var myndin, sem beint er að „hinum þögla meirihluta“ harðlega gagnrýnd af fjölmiðlum og stofnunum yfirvaldsins og reynt var að hamla dreifingu hennar á sínum tíma.

