Fjölskyldudagar SHÍ verða miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. nóvember.
Á dögunum verða áhugaverðir fyrirlestrar samkvæmt meðfylgjandi dagskrá sem
miðaðir eru sérstaklega að fjölskyldufólki innan HÍ.
Klukkan 16:30 báða dagana verður auk þess sérstök dagskrá fyrir börn.
Frítt verður í sund á sundstöðum ÍTR miðvikudaginn 11. nóvember gegn
framvísun stúdentakorts og Bóksala stúdenta verður með tilboð á vel völdum
bókum báða dagana.
Við hvetjum alla til þess að mæta!
Fjölskyldunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Dagskrá:
Fimmtudagur 12. Nóvember
Staðsetning: HT 101
14:10 – „Fjölbreytileiki og fjölskyldulíf“
Hverjir eru seinfærir foreldrar og hvernig vegnar þeim. Lögð verður
áhresla á persónulega reynslu og félagslegar aðstæður seinfærra foreldra í
íslensku samfélagi.
14:30 – „Áhrif ofbeldis í myndmiðlum á börn“
Hversu mikil áhrif hefur ofbeldi í sjónvarpsþáttum og teiknimyndum á börn?
Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor í fötlunarfræði
15:00 - Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræði. – „Á ég að láta bólusetja barnið mitt?“
Fjallað um bólusetningar, bestu vörnina gegn alvarlegum smitsjúkdómum.
16:30- Ingileif Jónsdóttir, prófessor.
Staðsetning: Háskólatorg
– „Sögustund á Háskólatorgi – leiksýningin Búkolla“
Þjóðleikhúsið og FS standa fyrir leiksýningunni Búkollu á sviðinu á Háskólatorgi.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikona spinnur og leikur hið
gamla ævintýri undir leikstjórn Friðriks Friðrikssonar.
Háma býður börnum upp á veitingar að sögustund lokinni.
Öll börn velkomin!
