Félagsstofnun stúdenta og Landsbankinn bjóða stúdentum og starfsfólki HÍ á tónleika á Háskólatorgi þriðjudaginn 17. nóvember kl. 17 – 18. Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar munu flytja tónlist af plötu sinni „Á Ljúflingshól“ en platan er óður til Jóns Múla Árnasonar. Aðgangur er ókeypis og tilboð verður á drykkjum á Hámubarnum.
