Norræna húsið7. maíkl. 12.15-13.30Gustav Fridolin, blaðamaður og lýðháskólakennari, fv. þingmaður, kynnir bók sína Blåsta! Nedskäringsåren som formade en generation (2009). Bókin fjallar um þá kynslóð Svía sem fæddist á 9. áratug síðustu aldar og var komin á unglingsár þegar bankakreppan varð í Svíþjóð á 10. áratugnum.
Höfundur heldur fram þeirri skoðun að þetta sé fyrsta kynslóð Svía á seinni tímum sem búi við lakari aðstæður en foreldrarnir, m.a. vegna niðurskurðar í skólamálum og vegna skorts á atvinnutækifærum. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingiskona, starfandi formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis og fulltrúi í Norðurlandaráði, ræðir við Gustav Fridolin og setur bók hans í samhengi við aðstæður hér á landi fyrir og eftir efnahagshrunið 2008. Dagskráin verður á sænsku. Allir velkomnir - aðgangur ókeypis.
Dagskráin er hluti af röð málþinga og fyrirlestra um norræn menningarmálefni og er studd af Norræna menningarsjóðnum, Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis, Clara Lachmanns fond og Letterstedtska föreningen.Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Norræna húsið

