Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Vísindavaka - vísindi og fræði kynnt almenningi

Printer-friendly version
24 Sep 2010 17:00
24 Sep 2010 22:00

Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, sem er síðasta föstudag í september. RANNÍS stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi. Vísindavaka 2010 verður haldin föstudaginn 25. september í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-22:00.

 

Fjölmargir vísindamenn og framhaldsnemar við Háskóla Íslands taka þátt í Vísindavökunni að þessu sinni. Þátttakendur eru af öllum fræðasviðum og verkefnin sem kynnt verða eru afar fjölbreytt. Vísindavefurinn verður á staðnum og gefst gestum kostur á að reka ritstjórann á gat með erfiðum spurningum. Þá mun hið víðfræga Sprengjugengi koma fram og sýna tilraunir sem eiga engan sinn líka. Kínverskan og japanskan opna fyrir okkur fjarlæga menningarheima og hægt verður að kynnast ýmsum hliðum mannskepnunnar með því að tala við þjóðfræðinga, mannfræðinga og fleiri fræðimenn. Þetta er aðeins brot af því sem verður í boði.

 

Vísindavakan er opin fólki á öllum aldri og aðgangur er ókeypis.

 

Nánari upplýsingar má fá á vef Vísindavökunnar.

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...