Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Hvað er félagsfræði?

Printer-friendly version

Hvað er félagsfræði?

Félagsfræði

Greinin er kennd til BA-prófs, diplóma-prófs, MA-prófs og doktorsprófs við Háskóla Íslands.

thorana_peopleLíttu í kringum þig – hvað sérðu?
Einstaklinga – hópa – fjölskyldur – þéttbýli – strálbýli – skólafélaga
– menntun – atvinnulíf – íþróttir – stjórnmál – fjölmiðla – afbrot
…Nútímasamfélagið er flókið, margbrotið og sífelldum breytingum
undirorpið. Öll þekkjum við félagslegt umhverfi okkar, en samt skiljum
við það oft illa. Félagsfræðingar fást við að varpa ljósi á undirstöður
samfélagsins og efla skilning á einstökum þáttum þess. Þeir, sem leggja
stund á félagsfræðinám við Háskóla Íslands öðlast þjálfun og færni í
öflun og meðferð margvíslegra upplýsinga, sem eru kostir sem mikil þörf
er á í upplýsinga- og þjónustusamfélagi nútímans. Hagnýting gagna er
ómissandi þáttur í samfélaginu og félagsfræðin veitir nemendum færni í
framsetningu og þjálfun í túlkun þeirra. Rík áhersla er lögð á
sjálfstæð vinnubrögð og eigið frumkvæði nemenda, auk tjáningarhæfileika
og samskiptahæfni.

Félagsfræði er fræðigrein sem greinir undirstöður þjóðfélagsins og
eflir skilning á ólíkum sviðum þess. Meðal viðfangsefna félagsfræðinnar
má nefna velferðarmál, lífskjör og lagskiptingu, afbrot, atvinnu- og
efnahagslíf, fjölmiðla, stöðu kynjanna, innflytjendamál, unglingsárin,
heilbrigði og lýðheilsu, fjölskyldumál, mannfjöldaþróun og
vísindastarf. Nám í félagsfræði felur í sér undirstöðuþjálfun í
fræðilegri hugsun og fræðilegum vinnubrögðum. Jafnframt er lögð áhersla
á sjálfstæði og frumkvæði nemenda.

Við hvað starfa félagsfræðingar?
Félagsfræðingar starfa við opinbera stjórnsýslu, félagsþjónustu,
tómstunda-, menningar- og íþróttastarfsemi, fræðslu, fjármála- og
tryggingastarfsemi, rannsóknir og ráðgjöf. Þeir vinna jafnt hjá hinu
opinbera og á einkamarkaði og kannanir hafa sýnt að langflestir telja
nám sitt í félagsfræði nýtast vel í starfi.

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Naglarnir er félag umhverfis- og byggingarverkfr-ðinema við HÍ.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...