Háskóli Íslands student.is

Félagsstofnun Stúdenta

Félagsstofnun Stúdenta
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Fæði

Printer-friendly version

Stefna Leikskóla stúdenta er:

  • að börnin læri að borða allan mat og kynnist sem flestum matartegundum.
  • að börnin fái hollt, næringarríkt og fjölbreytt fæði.
  • að bjóða árstíðabundinn mat svo sem slátur og lifur á veturna en skyr og léttara fæði á sumrin.
  • að leggja áherslu á neyslu bauna, grænmetis og grófs korns eins og íslensks byggs, búlgúrs og fleira.
  • að nota trefjaríkan mat t.d. í grauta og fleiri rétti. ? að vera með einn grænan dag í viku með t.d: grænmetislasagna eða grænmetisbuffi. ? að börnin borði mikið af fersku grænmeti og ávexti.
  • að draga úr neyslu unnar kjötvöru. (Þar sem kjötfarsbollur með brúnni sósu og kartöflumús er mikill uppáhaldsréttur margra barnanna er hann þó matreiddur í öðrum hverjum mánuði.)
  • að baka nýtt brauð á hverjum degi. (Er oftast um gróft brauð með rúgmjöli, korni og ávöxtum að ræða en einu sinni í viku fá þau eitthvað sætara eins og bananabrauð, döðlubrauð eða eplaköku í kaffitímanum en alltaf ferska ávexti með.)

Matreiðslan

Í byrjun árs 2005 var gerð breyting á fyrirkomulagi á matreiðslu hjá Leikskólum stúdenta. Fer hún nú fram með þeim hætti að matur fyrir leikskólana þrjá, Sólgarð, Mánagarð og Efrihlíð er eldaður á Mánagarði og ekið þaðan á hina skólana. Í þessari breytingu felst mikil hagræðing. Er nú unnt að leggja meiri metnað í matreiðsluna og bjóða upp á fjölbreyttara fæðuval þegar eldað er fyrir þau 146 börn og þá 34 starfsmenn sem dvelja og starfa á leikskólum stúdenta.

Yfirumsjón með matreiðslunni hafa þær Anna Sigríður Jóhannesdóttir sem er menntaður matreiðslumaður og Íris Ólöf Baldursdóttir matartækninemi.

Viðburðir

Fiskurinn í nærmynd

Fiskurinn er nemendafélag Guðfræði og trúarbragðafr-ðideildar HÍ.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...