Skipulags- og námskeiðsdagar
Skipulagsdagar eru ætlaðir starfsfólki leikskóla til að skipuleggja vinnu sína. Skipulagsdagar eru í upphafi hverrar annar. Þennan tíma notar starfsfólk til áætlanagerða, skipulags á vetrarstarfinu og endurmat á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin með börnunum auk þess sem starfsfólki gefst tækifæri á að kynna sér þróunar- og skipulagsvinnu á öðrum leikskólum.
Námskeiðsdagar eru ætlaðir starfsfólki til fræðslu og til að sækja sér sérþekkingu á ákveðnu verkefni í fyrirlestrar- og/eða vinnuhópaformi. Leikskólar stúdenta hafa staðið fyrir sameiginlegum námskeiðsdegi leikskólanna og nú síðast var honum varið í skyndihjálparnámskeið fyrir allt starfsfólk leikskóla stúdenta. Einnig er hverjum leikskóla frjálst að velja sér fyrirlesara/námskeið ef að það kemur sér betur fyrir leikskólann vegna þema- og þróunnarvinnu.

