Háskóli Íslands student.is

Félagsstofnun Stúdenta

Félagsstofnun Stúdenta
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Hugmyndafræði

Printer-friendly version

Starfið í leikskólanum Sólgarði byggir á Uppeldisáætlun fyrir leikskóla. Þegar við skipuleggjum starfið horfum við til þeirrar meginstefnu í lögum um leikskóla að uppeldisstarf skuli mynda órofa heild og kappkosta í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barna í samræmi við eðli, þarfir og þroska hvers og eins. Með uppeldisáætlun að leiðarljósi leggjum við sérstaka áherslu á fjóra útgangspunkta.

  • Fyrstu bernskuárin eru sérstætt þroskaskeið sem taka ber tillit til og virða.
  • Skynjanir barns, athafnir og samskipti við aðra eru mikilvæg undirstaða undir allt nám þess.
  • Lítið barn þroskast best og eðlilegast í leik.
  • Barn þarf að njóta frjálsræðis til að kanna umhverfi sitt og læra af því.

Starfið í Sólgarði gengur m.a. út á að kenna börnunum að vera í leikskóla. Þau stoppa yfirleitt í 1/2- 1½ ár hjá okkur. Þau byrja á aldrinum 6 mánaða til eins árs. Til að byrja með venjast þau því að vera í hóp, þau aðlagast öðruvísi fæði og kynnast nýju umhverfi og nýju fólki. Fyrir barn á fyrsta ári skiptir öryggi og hlýja mestu máli. Líkamleg og andleg umönnun eru ekki tveir aðskildir þættir heldur samvirk og samofin heild. Forsenda þess að barn geti unað sér, dafnað, leikið sér og lært er að það njóti ábyrgrar umönnunar, bæði líkamlegrar og andlegrar. Segja má að líkamleg umönnun og heilsuvernd sé hornsteinninn í uppeldi ungra barna. Því yngra sem barnið er því meiri rækt þarf að leggja við þessa þætti uppeldisins. Frumþörfum barnsins þarf að sinna af nærfærni og þekkingu og taka tillit til vaknandi tilfinninga- og vitsmunalífs þess. Í frumbernsku er barnið algjörlega háð ástúð og umönnun fullorðna fólksins. Okkar hlutverk er að sinna hverju og einu barni en að sjálfsögðu horfum við á þarfir hópsins í leiðinni, börnin þurfa til dæmis að læra að bíða.

Lögð er áhersla á að skipulag og búnaður í leikskólanum stuðli að fjölbreyttum leik barnanna, veki forvitni þeirra, frumkvæði, virkni og gleði og efli sjálfstæði þeirra. Þroski er afrakstur af virkni barnsins í leik og starfi. Ein helsta námsleið barna á leikskólaaldri er leikurinn þ.e. hinn sjálfsprottni leikur. Þá glíma börnin á eigin forsendum við umhverfi sitt.  Við þurfum að vera meðvituð um hvað við gerum, til dæmis megum við ekki hlaupa til og hjálpa börnunum heldur leyfa þeim að gera mistök í fyrstu og ná smátt og smátt tökum á því sem þau eru að fást við s.s að komast í rennibrautina, læra að púsla einfalt púsl og fleira. Börnin eru ekki smækkuð mynd af fullorðnu fólki, þau hugsa öðruvísi og eiga rétt á að vera börn og njóta bernsku sinnar. Það er mikilvægt að við reynum að setja okkur í spor barnanna, skoðum heiminn út frá þeirra sjónarhól og gleðjumst yfir sigrum þeirra.

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

FNÍS er félag sjúkraþjálfun-arnema. Lukkudýr félagsins er beinagrindin Hreyfingur.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...