Leikskólastjóri.
Hann hefur á hendi umsjón með daglegum rekstri, eftirlit með húsnæði, áhöldum og leiktækjum, öll eru innkaup í samráði við leikskólakennara og annað starfsfólk leikskólans. Leikskólastjóri ber einnig ábyrgð á að starfsemin í heild fari fram innan þess ramma sem lög og reglur segja til um. Leikskólastjóri hefur forystu um og ber ábyrgð á að uppeldisstarfið sé unnið á markvissan hátt í samræmi við aðalnámskrá og þau markmið sem sett hafa verið af hinu opinbera. Hann þarf því að hafa góða yfirsýn yfir starfsemina í heild. Leikskólastjóri skipuleggur uppeldisstarfið og hefur forystu um áætlanagerð skólans og markar stefnu hans í samráði við leikskólakennara. Hann sér um að áætlanir séu framkvæmdar og endurmetnar.
- Leikskólastjóri Mánagarðs er Sigríður Stephensen
Aðstoðarleikskólastjóri.
Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra og sinnir þeirri vinnu í fjarveru hans. Auk þess ber aðstoðarleikskólastjóra að halda utan um innra starf leikskólans og fylgja eftir áætlunum í daglegum rekstri skólans.
- Aðstoðarleikskólastjóri Mánagarðs er Anna Guðjónsdóttir.
Deildarstjóri.
Deildarstjóri ber ábyrgð á uppeldisstarfinu á sinni deild og barnahópnum sem honum er treyst fyrir. Deildarstjóri undirbýr uppeldisstarfið, hefur forystu um áætlanagerð á sinni deild og leiðir umræður um þær á faglegan hátt. Deildarstjóri er leiðbeinandi ófaglærðs starfsfólks á deildinni. Honum ber að leggja rækt við samstarf við foreldra og styðja þá í foreldrahlutverki sínu þegar þörf gerist. Einnig ber deildarstjóra að hafa náið samband við sérfræðinga sem tengjast leikskólanum og vera tilbúin til að nýta sér sérfræðiþjónustu þeirra í þágu barnanna þar sem hennar er þörf.
- Deildarstjórar á Tröllahelli eru Íris Dögg Jóhannsdóttir og Sigurður Þ. Þorsteinsson
- Deildarstjórar á Hulduhóli eru Sigrún Á. Gunnarsdóttir og Herdís Stephensen
- Deildarstjóri á Álfasteini er Anna Guðjónsdóttir
Leikskólakennarar og sérhæfðir leiðbeinendur.
Leikskólastjórar og sérhæfðir leiðbeiningur bara ábyrgð á barnahópnum og sjá um að það umhverfi sem börnin dveljast í sé við hæfi barnanna, hlýlegt og örvandi til þroskavænlegra leikja og lærdóms. Á deildinni á að ríkja öryggi og festa, samfara eðlilegu frjálsræði. Leikskólakennurum og öðru starfsfólki ber að sjá til þess að börnin njóti þeirrar ástúðar og líkamlegrar sem og andlegrar umönnunar sem börn á unga aldri þurfa á að halda, hvert eftir aldri sínum, þroska og reynslu. Öllu starfsfólki leikskóla ber að styrkja, styðja, hugga og hvetja. Uppeldisstarfið og umhverfið þarf að miða að því að skapa með börnunum tilfinningarlegt jafnvægi og öryggiskennd.
Matreiðslumaður:
Matráður:
Aðstoð í eldhúsi:

