Mikilvægt að fylgja leiðbeiningum við gerð umsóknar!
- Umsókn skal vera að hámarki þrjár A4 prentaðar síður. Skal hún vera nafnlaus og rituð af umsækjanda. Í umsókn skal koma fram heitið á verkefninu, nafn leiðbeinanda og skal hún vera skýr og markviss og fjalla um verkefnið í hnotskurn.
- Fylgiskjöl.
Með umsókninni skal fylgja:
Lokað umslag með:
- Námsferilsyfirliti frá nemendaskrá HÍ.
- Umsögn frá leiðbeinanda verkefnis. Skal umsögnin vera að hámarki tvær A4 síður. Skal koma fram að nemandi hyggst útskrifast við næstu útskrift. Ef nemandi er í fagi þar sem ekki eru unnin lokaverkefni og verkefnið var unnið fyrr á námsferlinum skal koma fram að verkefnið sé sex einingar eða meira. Heiti verkefnisins og nafn leiðbeinanda skal koma fram í umsögninni.
- Blað með fullu nafni, kennitölu, heimilsfangi, síma og netfangi umsækjanda.
Áður en námsferilsyfirlit og umsögn leiðbeinanda eru sett í umslag skal tekið af því ljósrit.
- Ljósrit af námsferilsyfirlitinu frá nemendaskrá HÍ. Skal nafn og kennitala afmáð af ljósritinu.
- Ljósrit af umsögn leiðbeinanda. Ef nafn umsækjanda kemur fram í umsögninni skal það máð af ljósriti.
Gögnin skal ekki binda inn eða hefta saman en mega vera í plastvasa eða tekin saman með bréfaklemmu.
Skal gögnunum skilað til FS í A4 umslagi merktu:
Félagsstofnun stúdenta
Verkefnastyrkur FS
Háskólatorgi, Sæmundargötu 4
101 Reykjavík
Verkefnið sjálft skal ekki fylgja umsókninni.
