Markmiðið er að börnin fái að njóta sín og læra í gegnum hinn frjálsa leik.
Leiðir: Börnin fara á ýmis svæði í 3-5 manna hópum eftir því hvað verið er að gera og er einn starfsmaður með hverjum hóp. Aðal áherslan er á hinn frjálsa og skapandi leik barnsins. Starfsmenn eru mis virkir í leik og starfi barnsins eftir því á hvaða svæði þeir eru og sem dæmi má nefna að í salnum er lögð áhersla á grófhreyfingar, þar geta börnin leikið sér í rennibraut, leikið með bolta o.fl.Á þessu svæði eru starfsmenn til staðar og grípa inní ef með þarf en börnin fá frið til að gleyma sér í leik og starfi.
Aftur á móti er starfsmaður virkari í leik barnanna í kubbakrók. Starfsmaður byggir með börnunum og börnin hafa mjög gaman af að brjóta það niður aftur. Vissulega fá börnin sem eru komin með þroska til að byggja sjálf tækifæri til þess og sum eru bara að skoða kubbana og smakka á þeim.

