Félagsstofnun stúdenta var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið. Í stjórn FS eiga sæti fimm fulltrúar. Þrír fulltrúar eru tilnefndir af Stúdentaráði HÍ, einn af HÍ og einn af menntamálaráðuneytinu. Fulltrúar Stúdentaráðs í stjórninni nú eru Haukur Agnarsson, stjórnarformaður, Þórlindur Kjartansson og Valgerður B. Eggertsdóttir. Fulltrúi Háskólans er Baldur Þórhallsson og fulltrúi menntamálaráðuneytis er Atli Atlason. Fundi stjórnar FS sitja einnig framkvæmdastjóri FS, formaður SHÍ og áheyrnarfulltrúar starfsmanna FS, Vöku, Röskvu og Háskólalistans
Stiklað á stóru í sögu FS
1968: Félagsstofnun stúdenta tekur til starfa og tekur við rekstri Gamla Garðs og Nýja Garðs, Kaffistofu stúdenta í Aðalbyggingunni, Bóksölu stúdenta, barnaheimilisins Efri-Hlíðar og Ferðaþjónustu stúdenta.
1971: Stúdentaheimilið við Hringbraut opnað. Kaffistofan í Árnagarði opnuð.
1972: Matsala stúdenta hefur starfsemi. Háskólafjölritun hefur starfsemi.
1973: Barnaheimilið Valhöll opnað. Kaffistofan í Lögbergi opnuð.
1975: Stúdentakjallarinn tekur til starfa.
1976: Hjónagarðar teknir í notkun, alls 55 íbúðir.
1980: Ferðaskrifstofa stúdenta hefur starfsemi.
1985: Kaffistofan í Odda opnuð.
1986: Kaffistofan í Eirbergi opnuð.
1989: Vetrargarður fullbúinn, 90 íbúðir.
1993: Fyrsti áfangi Ásgarða tilbúinn, 27 íbúðir.
1994: Næsti áfangi Ásgarða tilbúinn, 38 íbúðir.
1995: 21 íbúð bætist við á Ásgörðum. Nýi Garður seldur HÍ. FS opnar leikskólann Sólgarð.
1996: FS opnar leikskólann Mánagarð. 17 íbúðir bætast við á Ásgörðum. Starfsaðstoð hafin í samvinnu við Hagvang.
1997: Enn einn áfangi á Ásgörðum tilbúinn, 44 íbúðir.
1998: Atvinnumiðstöð stúdenta hefur starfsemi. Fyrri áfangi Skerjagarðs tekinn í notkun, 41 íbúð.
1999: Seinni áfangi Skerjagarðs kemst í gagnið, 38 íbúðir. Ferðaskrifstofa stúdenta seld Samvinnuferðum-Landsýn.
2000: 44 nýjar íbúðir á Ásgörðum teknar í gagnið.
2001: Veitingastaðurinn Deli opnar útibú í Stúdentaheimilinu við Hringbraut.
2001: Námsráðgjöf Háskóla Íslands flytur í Stúdentaheimilið við Hringbraut.
2001: FS opnar nýja kaffistofu í Læknagarði.
2001: Sólgarður stækkar við sig og dagvistunarrýmum fjölgar.
2001: Bóksalan setur alla starfsemi sína á vefinn.
2002: Efri-Hlíð verður einn af Leikskólum FS.
2002: Fyrsti áfangi stóra hússins í Ásgarðahverfinu tilbúinn, 30 íbúðir.
2002: Sólgarður stækkaður.
2003: Síðasta húsið í Ásgarðahverfinu tilbúið, 94 íbúðir.
2003: 10 - 11 verslun opnuð í Ásgarðahverfinu.
2003: Kaffi Náttúra opnar í Öskju.
2005: Atvinnumiðstöð stúdenta og húsnæðis-, kennslu- og barnagæslumiðlun SHÍ sameinast í Stúdentamiðlun sem FS rekur.
2005: Leikskólinn Efrihlíð flytur í nýtt húsnæði við Ægissíðu.
2005: Byggingaframkvæmdir við Stúdentagarða við Lindargötu hefjast.
2006: Leikskólinn Efrihlíð flytur í húsnæði Leikgarðs og FS tekur við rekstrinum.
2006: Skuggagarðar teknir í notkun.
2007: FS flytur alla starfsemi sína í Háskólatorg, opnar þar nýja Bóksölu stúdenta og nýjan veitingastað Hámu.
