Þegar tekið er á móti börnunum á morgnana
Lögð er áhersla á að taka hlýlega á móti börnunum þegar þau mæta í leikskólann. Börnin eru misjafnlega upplögð og við reynum að mæta hverju barni á þess forsendum. Sami starfsmaður opnar alltaf og við teljum að það veiti börnunum öryggi enda eru þau mjög vanaföst.
Máltíðir
Við matarborðið eiga börn og starfsmenn ákveðin sæti og veitir það börnunum öryggi og skapar rólega stund. Mörg barnanna eru mötuð en 12-14 mánaða byrja þau að reyna að borða sjálf, fyrst um sinn með aðstoð. Reynslan sýnir að þau geta oft meira en við höldum.
Hreinlætisvenjur
Börnin eru öll með bleiur en þegar þau eru að nálgast 2ja ára förum við í samvinnu við foreldra að láta þau á kopp og við tökum þátt í því ef börnin hætta með bleiu á meðan þau eru hjá okkur en það er í algjörum undantekningartilfellum.
Svefn og hvíld
Börnunum er skipt í tvo hópa, eldri börnin sofa inni á dýnum en yngri börnin úti í vögnum. Mikil áhersla er lögð á algjöra kyrrð og þess vegna er engin tónlist í hvíldinni heldur algjör þögn. Venjulega sofa börnin í 1-2 klukkustundir.
Hópastarf
Á hverri deild eru fjórir aldurs blandaðir hópar og einn starfsmaður með hverjum hóp. Starfið í hópunum fer eftir því á hvaða svæði hópurinn er.
Inni á deild:
- Frjáls leikur í opnu rými
- Púslað og pinnað við borðin
- Leikið í kubbakrók
Salurinn: Grófhreyfingar
Gangurinn á milli deildanna: Grófhreyfingar
Listaskáli: Mála, leira og ýmiskonar föndur
Útivera: Hreyfing og frjáls leikur
Einnig höfum við myndað hóp elstu barna af öllum deildum sem kemur saman á mánudögum og föstudögum Í þessum hóp eru önnur og svolítið erfiðari verkefni lögð fyrir en í hinum hópunum. Auk þess fá elstu börnin á hverri deild sögustund daglega.

