Háskóli Íslands student.is

Félagsstofnun Stúdenta

Félagsstofnun Stúdenta
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Stefna

Printer-friendly version

Hugmyndafræði leikskóla

Starf leikskóla tekur mið af Aðalnámskrá leikskóla sem tók gildi þann 1. júlí 1999 en þar er kveðið á um uppeldis- og menntunarhlutverk leikskólans og meginstefnu varðandi starfshætti.
Hugmyndafræði leikskólastarfs er sú að í leikskóla fer fram uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri. Í öllu starfi leikskólans felst uppeldi og menntun.

Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi barna sinna en leikskólinn er viðbót við það uppeldi sem börnin fá á heimilum sínum. Leikskólauppeldi er annars konar uppeldi en það sem foreldrar inna af hendi, en mikilvæg viðbót við það.

Í leikskólanum er lögð áhersla á að virkja og virða leikgleði barna og er gengið út frá að það að leika sér sé aðalsmerki hans. Leikskólinn á að halda í þessi séreinkenni, þau eru aðalsmerki hans. Með lögum sem sett voru árið 1994 var leikskólinn skilgreindur sem fyrsta skólastigið hér á landi. Leikskólinn er hluti af skólakerfinu, en um margt ólíkur öðrum skólastigum. Hins vegar er brýnt að samfella sé á milli leik- og grunnskóla og að námskrár skólastiganna endurspegli það.

Við vinnum ekki samkvæmt einni ákveðinni hugmyndafræði því við höfum mótað okkar eigin starfsgrundvöll þar sem við höfum lagað kenningar uppeldisfrömuða eins og John Dewey, Caroline Pratt, Vigotsky og Piaget að námsstefnu leikskólans.

Einkunnarorð Mánagarðs eru virkni, jafnræði, samvinna og gleði.

  • Virkni: Við stefnum að því að barnið sé virkur þátttakandi í leik og starfi og að virkja hinu miklu athafnaþrá barnsins. Að vekja áhuga þess á umhverfi sínu og öllu því sem tengist lífi þess og daglegum venjum.

 

  • Jafnræði: Að jafnræði myndist innan barnahópsins þannig að hvert barn geti tekið þátt á jafnréttisgrundvelli, treyst á sjálft sig og fái sterka sjálfsmynd. Að barnið upplifi að það skipti máli sem hluti af heild og að skoðanir þess séu virtar.

 

  • Samvinna: Að barnið öðlist skilning á gildi samvinnu og þroski með sér samkennd og ábyrgðartilfinningu. Samvinna eykur samheldni meðal barnanna og gerir þeim kleyft að treysta hverju öðru

 

  • Gleði: Gleði barnsins er upphaf og endir alls starfs sem fram fer á leikskóla. Án gleði virkjum við ekki barnið í því námi sem hér fer fram. Að bjóða upp á verkefni til úrlausnar sem hæfir hverju barni í þroska og áhugasviði þess er grundvalllaratriði og að gefa hverju barni tækifæri til að finna sig og þroskast í leik og starfi.

Stefna Leikskóla stúdenta er:

  • að börnin læri að borða allan mat og kynnist sem flestum matartegundum.
  • að börnin fái hollt, næringarríkt og fjölbreytt fæði.
  • að bjóða árstíðabundinn mat svo sem slátur og lifur á veturna en skyr og léttara fæði á sumrin.
  • að leggja áherslu á neyslu bauna, grænmetis og grófs korns eins og íslensks byggs, búlgúrs og fleira.
  • að nota trefjaríkan mat t.d. í grauta og fleiri rétti.
  • að vera með einn grænan dag í viku með t.d: grænmetislasagna eða grænmetisbuffi.
  • að börnin borði mikið af fersku grænmeti og ávexti.
  • að draga úr neyslu unnar kjötvöru. (Þar sem kjötfarsbollur með brúnni sósu og kartöflumús er mikill uppáhaldsréttur margra barnanna er hann þó matreiddur í öðrum hverjum mánuði.)
  • að baka nýtt brauð á hverjum degi (Er oftast um gróft brauð með rúgmjöli, korni og ávöxtum að ræða en einu sinni í viku fá þau eitthvað sætara eins og bananabrauð, döðlubrauð eða eplaköku í kaffitímanum en alltaf ferska ávexti með.)

 

Viðburðir

Haxi í nærmynd

Haxi er félag líffræðinema.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...