Háskóli Íslands student.is

Félagsstofnun Stúdenta

Félagsstofnun Stúdenta

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Stúdentamiðlun

Printer-friendly version

Þjónustuvefur stúdenta

Öll miðlun fer fram á vefnum www.studentamidlun.is. Þar fer fram miðlun atvinnu, húsnæðis, kennslu, barnagæslu, námsbóka og lokaverkefna. Vefurinn er gagnvirkur, stúdentar sækja sér þjónustu milliliðalaust og fyrirtæki og einstaklingar leita að starfsfólki, leigjendum og lokaverkefnum í gegnum netið. Til viðbótar eru ýmsar hagnýtar upplýsingar á vefnum.

Atvinna

Markmið Stúdentamiðlunar er annars vegar að auðvelda námsmönnum leit að starfi, einkum sumar-, hluta- eða tímabundnu og hins vegar að auðvelda atvinnurekendum að finna fólk í umrædd störf.

Markmiðið er að Stúdentamiðlunin verði algerlega gagnvirk þ.e. milliliðalaus. Námsmenn skrá sig á vefinn og atvinnurekendur kaupa aðgang og leita sjálfir í gagnagrunninum eftir þeim skilyrðum sem þeir setja. Þá geta atvinnurekendur einnig auglýst eftir starfsfólki á vefnum og námsmenn þá sótt um.

Húsnæði

Húsnæðismiðlun er ætlað það hlutverk að miðla húsnæði til námsmanna við Háskóla Íslands. Húsnæðiseigendur geta skráð eignir sínar  til leigu gegn gjaldi, hvort sem um er að ræða herbergi eða íbúðir. Stúdentar við HÍ geta síðan skoðað auglýsingarnar og sett sig í samband við eiganda. Þegar húsnæði hefur verið leigt getur leigusali tekið auglýsinguna sína út. Stúdentamiðlun er ekki ráðgefandi varðandi leiguverð og leggur hvorki mat á leigusala né leigutaka í neinu tilliti.

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni