Verkefnastyrkir FS veittir þrisvar á ári
Verkefnastyrkir FS eru veittir þrisvar á ári. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni.
Fjórir kandidatar hljóta styrki vegna BS- eða BA-verkefna á ári. Tveir vegna brautskráningar að sumri, einn vegna brautskráningar að hausti og einn vegna brautskráningar í febrúar. Tvennskonar BS- og BA-verkefni eru styrkhæf: Lokaverkefni, enda útskrifist nemandi innan þriggja mánaða, verkefni í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginleg lokaverkefni og verkefnið veiti sex einingar eða meira samkv. gamla einingakerfinu en 12 einingar samkv. því nýja.
Meistara- og doktorsverkefni þeirra sem útskrifast hafa á liðnu skólaári eru styrkhæf enda hafi umsækjandi útskrifast á skólaárinu sem er að líða, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní á síðasta ári til og með útskrift í júní n.k.
Hver styrkur nemur kr. 150.000.

