Ef sérstakar aðstæður liggja fyrir er hægt að sækja um forgang að leikskólunum stúdenta. Umsókn um forgang á Mánagarð fer fram í gegnum
þjónustumiðstöð Vesturbæjar en umsókn um forgang á Leikgarði og
Sólgarði fer fram á eftirfarandi hátt:
- Umsókn skal skilað til viðkomandi leikskólastjóra. Með
umsókn skulu fylgja gögnum sem styðja forgang þ.e. læknisvottorð,
vottorð frá félagsráðgjafa og/eða greiningarstöð. - Leikskólastjóri
mælir með forgangi við úrskurðarnefnd sem skoðar hvert tilvik fyrir
sig. Úrskurðarnefnd er skipuð fulltrúa námsráðgjafar HÍ, fulltrúa
Stúdentaráðs HÍ og fulltrúar Leikskóla stúdenta. - Leikskólastjóri tilkynnir foreldrum ákvörðun nefndarinnar og er niðurstaða nefndarinnar endanleg.

