Samþykkt um Verkefnastyrk Félagsstofnunar stúdenta (FS)
I. Nafn, markmið og ákvörðunarvald:
1. gr. Styrkurinn nefnist „Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta”.
2. gr. Markmiðið með styrknum er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni.
3. gr. Stjórn FS á hverjum tíma fer með ákvörðunarvald um öll málefni varðandi styrkinn og úthlutar honum.
II. Úthlutunarreglur:
4. gr. Fjórir styrkir eru árlega veittir stúdentum sem eru að ljúka BS, BA, embættisprófi eða kandídatsprófi við Háskóla Íslands. Tveir vegna brautskráningar að sumri, einn vegna brautskráningar að hausti og einn vegna brautskráningar í febrúar. Upphæð hvers styrks er 150.000 krónur.
Tveir styrkir eru árlega veittur vegna meistara – eða doktorsverkefnis við Háskóla Íslands. Skulu styrkirnir veittir á hverju sumri vegna brautskráningar á liðnu skólaári. Upphæð hvor styrks er 150.000 krónur.
5. gr. Tvennskonar BS-, BA-, kandídats- og embættisprófverkefni eru styrkhæf:
- Lokaverkefni, enda útskrifist nemandi innan þriggja mánaða.
- Verkefni í greinum þar sem nemar vinna ekki eiginleg lokaverkefni og verkefnið veiti sex einingar eða meira samkv. gamla einingakerfinu, 12 einingar samkv. því nýja.
6. gr. Meistara- og doktorsverkefni þeirra sem útskrifast hafa á liðnu skólaári eru styrkhæf enda hafi umsækjandi útskrifast á skólaárinu sem er að líða, þ.e. á tímabilinu eftir útskrift í júní á síðasta ári til og með útskrift í júní n.k.
7. gr. Senda skal tölvupóst frá FS til allra þeirra sem skráðir eru til útskriftar hjá nemendaskrá HÍ og þeim kynntur styrkurinn. Jafnframt skal auglýsa styrkinn á heimasíðu FS og í útgefnu efni á vegum FS.
8. gr. Þegar gengið er frá umsókn skulu leiðbeiningar um frágang umsóknar um Verkefnastyrk FS hafðar til hliðsjónar. Leiðbeiningar skulu fylgja með tölvupósti sem útskriftarnemum er sendur og koma fram á heimasíðu FS. Umsóknir skulu vera nafnlausar og hafa að geyma lýsingu á verkefni, námsferilsyfirlit og umsögn frá leiðbeinanda um verkefnið. Uppýsingar um nafn umsækjanda skal afmá af öllum framangreindum gögnum. Með umsókn skal fylgja lokað umslag með upplýsingum um nafn, heimilsfang, síma og netfang umsækjanda og frumrit frá nemendaskrá og leiðbeinanda.
9. gr. Umsóknir skulu hafa borist á skrifstofu FS eigi síðar en 14 dögum fyrir úthlutun. Úthlutun styrkjanna skal á hverju ári vera lokið 1. júlí vegna brautskráningar að sumri, 1. nóvember vegna brautskráningar að hausti og 1. mars vegna brautskráningar í febrúar.
10. gr. Að úthlutun lokinni skal senda öllum umsækjendum tölvupóst sem tilgreinir niðurstöður úthlutunar.
11. gr. Samþykkt þessi tekur gildi frá og með 6. desember 2006 og verður styrkurinn veittur í fyrsta sinn eftir þessa samþykkt í febrúar 2007.
Samþykkt á stjórnarfundi 6. desember 2006
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta:
Þórlindur Kjartansson, formaður
Haukur Agnarsson
Auður Lilja Erlingsdóttir
Kristján Jóhannsson
Atli Atlason
