Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


  • Vantar alltaf stráka í Háskólakórinn
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    „Starfið mitt felst í að vera inn í öllu og vita hvað allar nefndir eru að gera, hafa umsjón með allri starfseminni,“ segir Edda Ósk Óskarsdóttir sem tók við embætti formanns Háskólakórsins 26. janúar síðastliðinn. Þetta er annað ár Eddu í stjórn og segir hún það ásamt því að vera í kór og skóla mjög tímafrekt en henni finnist þetta virkilega skemmtilegt og krefjandi. „Ég þarf alltaf að hafa mikið að gera,“ segir hún.

    skoða
  • Dansinn er fínasta líkamsrækt
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Síðan árið 2008 hefur Háskóladansinn verið starfræktur en eitt af helstu markmiðunum er að fá háskólanema til þess að koma út á gólf og dansa. Í Háskóladansinum geta allir komið og dansað þó svo að nafnið gefi kannski annað til kynna. Bjarki Þór Guðmundsson ákvað að prófa að mæta á æfingu þegar hann byrjaði í Háskólanum síðasta haust og sér hann ekki eftir því. 

    skoða
  • Vaka sigurvegari
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Vaka er sigurvegarinn í kosningum til Stúdentaráðs og Háskólaráðs. Vaka hlaut 2.499 atkvæði til Stúdentaráðs en Röskva 1.975 atkvæði. Til Háskólaráðs hlaut Vaka 2.056 atkvæði en Röskva 1.763 atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru 333. Alls kusu 4.806 nemar en á kjörskrá voru 15.203.

    skoða
  • Efnahagur réði ekki bókaeign kvenna á 18. öld
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    „Sérstaða karla fyrr á öldum var fólgin í æðri menntun en konur voru dyggðugar, siðprúðar, áttu að þegja og hafa sig ekki mikið í frammi. Helst áttu þær alltaf að vera með sálma eða trúarrit í höndunum,“ segir Guðrún Ingólfsdóttir, doktor í íslenskum bókmenntum, sem kynnti í dag doktorsritgerð sína „Í hverri bók er mannsandi“ sem fjallar í stuttu máli um konur á 18. öld og
    handritaeign þeirra.

    skoða
  • Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur og þýðandi, og Hildur Óskarsdóttir, verkefnastjóri og meistaranemi á Mannvísindasviði, til að ræða það sem efst var á baugi í þjóðfélagsumræðunni.

     

    Við fórum um víðað völl; allt frá snjóþyngslum og kynferðisbrotamálum til Landsdómsmáls og væntanlegs kjörs forseta Íslands.

    skoða
  • Aldrei fleiri fyrirtæki á Framadögum
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Aldrei hafa jafn mörg fyrirtæki kynnt starfsemi sína á Framadögum Háskólanna eins og nú, en 35 fyrirtæki mættu til leiks í Háskóla Reykjavíkur í dag. Hrafnhildur Ýr Benediktsdóttir framkvæmdarstjóri Framadaga var að vonum ánægð með góða þátttöku fyrirtækja og almennings.

    skoða
  • Breytingar á stúdentakosningum
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Breytingar eru fyrirhugaðar á kosningafyrirkomulagi stúdentaráðskosninga. Þær auðvelda einstaklingum að bjóða sig fram án tengsla við fylkingar. Horfið á frétt hér.

    skoða
  • Umbylting í kínverskukennslu
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Íslendingum barst nýlega kennsluefni á íslensku að gjöf frá kínverska menntamálaráðuneytinu. Fréttamaður Student.is ræddi við Geir Sigurðsson dósent í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands. Hann segir gjöfina umbylta kínverskukennslu. Hlusta á viðtal. 

    skoða
  • Nemendur misjafnlega ævintýragjarnir
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Marga nemendur dreymir um að taka hluta af námi sínu erlendis. Fréttamaður student.is ræðir hér við Rúnu Vigdísi Guðmarsdóttur frá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins um möguleika nemenda á skiptinámi til Evrópu. Sjá nánar hér.

    skoða
  • Framadagar Háskólanna haldnir í dag
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Framdagar Háskólanna verða haldnir í Háskóla Reykjavíkur í dag, 1. febrúar á milli klukkan 11 og 16. Um árlegan viðburð í háskólalífinu er að ræða þar sem helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína og gefst nemendum tækifæri til að leggja grunn að sumarvinnu, framtíðarstarfi eða verkefnavinnu fyrir fyrirtæki.


    skoða
Syndicate content

Viðburðir

Politica í nærmynd

Draumavísind-aferð Politicu er heimboð til Barack Obama.

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...