Eiga háskólanemendur að lifa á loftinu? Þetta er spurning sem margir
stúdentar við Háskóla Íslands hafa verið að spyrja sig. Það er óvíst hvort að nemendum standi til boða lánshæft nám í sumar, ofan á að það að eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Málstofa var haldin í vikunni þar sem ráðherrarnir Árni Páll Árnason og Katrín Jakobsdóttir reyndu að
svara spuningum stúdenta.
Málstofan var skipulögð af nemendafélögum félagsráðgjafardeildar, Ólafía og Mentor og tók Jens Fjalar Skaptason formaður SHÍ fyrstur til máls og beindi spurningum sínum til ráðherrana tveggja. Jens Fjalar spurði ráðherrana hvort það væri virkilega hagur í því að fólk flosnaði upp úr skóla og færi á bætur sem hann kallaði óafturkræf lán, frekar en að veita námslán til sumaranna sem yrðu svo greidd til baka að fullu.
Síðasta sumar var gerð tilraun til sumaranna við HÍ og var framboð á námskeiðum af skornum skammti og skráning nemenda eftir því. Jens Fjalar sagði að erfitt væri að fá svör bæði frá HÍ og Menntamálaráðineytinu um hvort að framhald yrði í ár og það væri algjörlega óásættanlegt að nemendum væri haldið í óvissu annað árið í röð.
"Mætti skoða að búa til heilsárs menntakerfi"
Árni Páll Árnason sagðist skilja gremju stúdenta vel. Óvissan væri vissulega vond en hún væri hinsvegar fylgifiskur þess ástands sem ríkir í þjóðfélaginu í dag. Það væri jafnfram mikilvægt fyrir stjórnvöld að búa til störf við hæfi nemanda ef þau væri ekki að finna á almennum vinnumarkaði í dag, og að slíkt mætti gera með litlum tilkostnaði. Mörg úrlausnar og skráningar verkefni sem setið hafa á hakanum hjá ríkis og sveitarfélögum væru til dæmis tilvalin sumarvinna fyrir nemendur.
"Svara að vænta á allra næstu vikum"
Katrín Jakobsdóttir tók undir orð Árna og sagði að hér á landi ríktu aðstæður sem ættu sér engar hliðstæðu. Til að sumarannar við skólann eigi að ganga þurfa deildir að vera með mikið framboð á námskeiðum, ef ekki á að koma upp sama staða og fyrir ári þar sem lítill hópur nýtti sér námskeiðin sem þá voru í boði. Katrín sagði jafnframt að verið væri að skoða svokölluð sumarpróf og gætu þau verið góð lausn fyrir stórann hóp námsmanna. Það væri einnig verið að skoða möguleikan á að stórefla nýsköpunar sjóð með það að markmiði að þar gætu stofnanir sótt um styrki til að ráða stúdenta í verkefnavinnu. Að lokum sagði Katrín að svara frá sjórnvöldum væri að vænta á allra næstu vikum, jafnvel dögum.
Skrifað af mai10 mai10@hi.is, þann 19.03.10