Háskóli Íslands student.is

Blaða- og fréttamennska

Blaða- og fréttamennska
Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Printer-friendly version

Efnafræði fyrir umhverfið, læknavísindin og þjóðarhag

Efnís 2009Efnafræði nýtt til beingræðslu, aldursgreiningar á fornleifum og förgunar kolefnis. Þetta er hluti af þeim hugmyndum og verkefnum sem kynnt voru fyrir gestum árlegrar ráðstefnu Efnafræðifélags Íslands á Hótel Loftleiðum sl. laugardag.

 

Að þessu sinni var þema ráðstefnunnar Efnafræði og nýsköpun" og þrír meginflokkar fyrirlestra: Líf- og heilsutækni, Efnafræði og efnatækni og Græn efnafræði, en hátt á annan tug fyrirlestra fóru fram á þessari fimmtu ráðstefnu félagsins.

 

Gissur Örlygsson

Gissur Örlygsson, efnafræðingur, hélt fyrirlestur um tilraunir á vegum Genís og Nýsköpunarmiðstöðvar til að nota kítínafleiður og kalsíumfosföt til beingræðslu. Enn er verið að þróa blöndurnar og er nákvæmnisverk að hitta á rétta stærð af skömmtum svo ekki verði ofvöxtur í beinunum en tilraunir á dýrabeinum ganga þó að flestu leyti vel. Þess er þó langt að bíða að hægt verði að hefja tilraunir á slíkri beingræðslu í mönnum.

 

Aldursforseti ráðstefnunnar, Páll Theódórsson frá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands sagði frá nýlegri aðferð við að aldursgreina lífrænar mannvistarleifar s.s. viðarkol og dýrabein, en í kjölfar hennar hafa komið fram vísbendingar um að landnám Íslands sé 200 árum Páll Theódórssoneldra en áður var talið.

 

Kerfið sem hingað til hefur verið notað við þessa greiningu, svokölluð kolefni-14 aldursgreining, vegur 1000 kíló og kostar 27 milljónir. Páll skýrði frá  því að Raunvísindastofnun hafi hannað og prófað einfaldara kerfi sem vegi einungis 30 kíló og geti kostað undir hálfri milljón í framleiðslu. Vonir standa til að vegna yfirburðakosta kerfisins, sem nefnist ICELS, verði hægt að selja þessi tæki erlendum rannsóknarstofum og enn fremur að skila góðum hagnaði af aldursgreiningum hérlendis fyrir erlenda vísindamenn.

 

Edda Sif Aradóttir

Í flokknum Græn efnafræði hélt doktorsnemi við HÍ, Edda Sif Aradóttir, fyrirlestur um mismunandi leiðir til að fanga og farga kolefni, þ.e. að farga því í setlög eða sjó eða binda það í steindir og lífmassa. Lokaverkefni Eddu tengist bindingu í steindir, þ.e. hermir niðurdælingu kolefnis í basalt. Það er jafnframt hluti af alþjóðlega verkefninu CarbFix en í tengslum við það mun tilraunaniðurdæling á kolefni í basalt hefjast á Hellisheiði síðar í vetur.

 

Ef vel tekst til má búast við að aðferðin verði notuð hér á landi til að binda kolefnisútblástur frá jarðhitavirkjunum og jafnvel annarri stóriðju. Einnig myndu niðurstöðurnar nýtast annars staðar þar sem basalthraunlög eru algeng víða um heim.

 

Efnafræðifélag ÍslandsHáskólanemar, prófessorar og fyrirtæki kynntu rannsóknir, vörur, nýungar og annað á veggspjöldum í kaffihléi ráðstefnunnar og var þar margt fróðlegt að sjá. Ráðstefnunni lauk með árshátíð Efnafræðifélagsins á Hótel Loftleiðum um kvöldið.

share

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Naglarnir er félag umhverfis- og byggingarverkfr-ðinema við HÍ.

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...