Háskóli Íslands student.is

Blaða- og fréttamennska

Blaða- og fréttamennska
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Printer-friendly version

BOG skálar stórkostlega í kvöld

Super Bowl at the SpotMeðlimir BOG, félag enskunemenda, hittast í kvöld kl. 23:00 á Spot í
Kópavoginum til að horfa á það sjónvarpsefni sem mest er horft á í
Bandaríkjunum, Super Bowl úrslitaleik NFL deildarinnar í ameríska
fótboltanum.

 

Fyrir utan það að læra ensku í náminu, þá koma félagar í BOG saman til að upplifa ameríska og breska menningu.

 

“Þegar það er eitthvað mikið um að vera í Bandaríkjunum eða Bretlandi, þá erum við líka með eitthvað hér,” segir varaformaður félagsins, Elmar Freyr Kristþórsson.

 

Í kvöld horfir félagið á tvö bestu amerísku fótboltaliðin, Indianapolis Colts og New Orleans Saints, keppa um titilinn lið ársins í úrslitaleik keppninnar Super Bowl XLVI.

 

Að horfa á Super Bowl leikinn er orðin árleg hefð hjá félaginu, en í Bandaríkjunum er sú hefð sterk að vinir og vandamenn hittast og horfa á leikinn saman.

 

Í Bandaríkjunum fylgjast 138 milljón  – eða 60 prósent fullorðinna með amerískum fótbolta, samkvæmt Scarborough Sports Marketing.

 

Metáhorf var á Super Bowl leikinn í fyrra, en þá fylgdust 98.7 milljónir með sjónvarpsútsendingunni, samkvæmt Nielsen ratings. Þeir benda hins vegar einnig á það að 51 prósent áhorfenda horfi á útsendinguna til þess að fylgjast með auglýsingunum frekar en að fylgjast með leiknum sjálfum.

 

 

Fimmtíu og einn prósent áhorfenda horfi á útsendinguna til þess að fylgjast með auglýsingunum frekar en að fylgjast með leiknum sjálfum.

 

Elmar, hins vegar, sem er áhugamaður um íþróttir, ætlar að mæta í kvöld og einbeita sér að leiknum fremur en auglysingunum.

 

“Ég er ekki viss um að það verði sýndar auglýsingar með leiknum sem verður væntalega sýndur í gegnum gervhnött,” segir Elmar.

 

“Þetta er meira til þess að hittast utan skólans og lífga upp á félagslífið og svo gerir þetta lærdóminn ekki jafn þurran,” bætir hann við.

 

BOG, er opið fyrir nemendur við Enskudeild Háskóla Íslands. Í nafni félagsins felst smá orðaleikur en “bog” á ensku þýðir “fen” á íslensku og þar sem félag enskunema er skammstafað “fen” var félagið skýrt BOG, útskýrir formaður félagsins, Elvar Örn Svansson. 

share

Viðburðir

Politica í nærmynd

Draumavísind-aferð Politicu er heimboð til Barack Obama.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...