Háskóli Íslands student.is

Blaða- og fréttamennska

Blaða- og fréttamennska
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Printer-friendly version

Góð stemning á tónleikum Hjálma

Draupnir Rúnar Draupnis.
Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

Múgur og margmenni á Háskólatorgi að hlusta á Hjálma.

Troðfullt var og mikil stemning á tónleikum Hjálma á Háskólatorgi í dag. Tónleikarnir voru partur af dagskrá nýnemadaga Háskóla Íslands og voru í boði Félagsstofnunar Stúdenta. Greinilegt var að nýnemar, sem og aðrir nemar og starfsfólk Hí, kunnu vel að meta viðburðinn og var mikil gleði yfir mannskapnum og hljómsveitinni vel fagnað að lokum.

 

Frábærir tónleikar

Þeir tónleikagestir sem Stúdent.is ræddi við voru hæstánægðir með tónleikana og sögðu það kærkomið og í rauninni lífsnauðsynlegt að lyfta sér aðeins upp úr lærdómnum sem byrjaður sé af fullum krafti og gaman sé að hitta félagana úr öðrum deildum HÍ. ,,Hjálmar voru frábærir og er ekki amalegt að vera boðið á svona tónleika á Háskólatorgi þar sem allir nemendur úr öllum deildum geta hist og fengið sér bjór og átt saman gleðistund og hugsað um eitthvað annað en námið,sögðu Hektor Már Jóhannsson og Guðmundur Örn Sigurðsson nemar á 2. ári í umhverfis- og byggingarverkfæði. Vonuðu þeir félagar að sem mest verði af spennandi viðburðum á Háskólatorgi í vetur til að brjóta upp hina hefðbundnu skóladaga.   

share

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Anima er félag sálfræðinema við HÍ.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...