Háskóli Íslands student.is

Blaða- og fréttamennska

Blaða- og fréttamennska

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Printer-friendly version

Höfundaréttur lokaritgerða er nemenda

lokaritgerdir

 Nemendur sem skrifa lokaritgerðir við háskólann eiga höfundarétt á efni sínu og leiðbeinendur þeirra mega ekki nota efni þeirra án þess að geta heimilda.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Student .is kom nýlega upp tilfelli innan skólans þar sem leiðbeinandi flutti fyrirlestur innan háskólans um efni lokaritgerðar nemanda síns án þess að geta heimilda og án vitneskju hans.

Þórður Kristinsson, sviðstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands, segir hlutverk leiðbeinenda að veita nemendum tilsögn við gerð ritgerða en það sé nemandinn sem sé höfundur. Ef leiðbeinandi vill sjálfur nota efni ritgerðar nemanda þá verði hann að geta heimilda.

Aðspurður um hvort það teldist eðlilegt að leiðbeinandi héldi fyrirlestur um efni lokaritgerðar án vitneskju nemanda eða að geta heimilda segir Þórður: „Það væri siðferðislega ámælisvert hjá kennara. Meginregla er að geta heimilda.“ Hann vilji þó ekki tjá sig um einstök mál án þess að þekkja þau til hlítar. „Það eru tvær hliðar á öllum málum.“

Þá vísar hann á siðareglur háskólans sem þann ramma sem gildir um samskipti leiðbeinenda og nemenda.

""

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni