Sandra Rún Sigurðardóttir, 3. ár í frönsku og hugvísindi: Ég ætla slappa af með fjöldskylduna og skrifa BA ritgerðirnar.

Sandra Rún Sigurðardóttir, 3. ár í frönsku og hugvísindi: Ég ætla slappa af með fjöldskylduna og skrifa BA ritgerðirnar.
Una Guðlaug Sveinsdóttir, 4. ár í ensku og frönsku: Ég ætla vinna að BA ritgerðirnar og borða páskaegg.
Anders Svensson, í lögfræði: Ég ætla fara á Aldrei Fór Ég Suður.

„Þetta byrjaði í fyrra en þá sýndi ég eingöngu íslenskar myndir. Ég talaði á undan hverri mynd um leikstjórann og íslenska kvikmyndagerð og lagði töluverða vinnu heima fyrir við að undirbúa það. Eftir áramót ákvað ég að sýna ekki eingöngu íslenskar kvikmyndir heldur líka erlendar en þemað á þessari önn eru heimildarkvikmyndir”. ESN (Erasmus Student Network) eru með fjölbreytta dagskrá fyrir erlenda nema og þau nálguðust mig af því þau vissu að ég væri kvikmyndanörd og hefði gaman af því að gera eitthvað svona í frítímanum," segir Ása. ,,Þetta er náttúrulega bara sjálfboðastarf en þau eru búin að vera almennileg á móti og bjóða mér t.d. á þorrablót og í jöklaferðir. Fyrst og fremst vildu þau fá einhvern sem hafði áhuga á þessu en svo átti ég líka eitthvað af íslenskum myndum í mínu einkasafni. Það getur verið gaman fyrir skiptinemana að sjá þessar íslensku myndir, þær eru að vísu einhverjar á vídeóleigunum en erlendir stúdentar eru kannski ekkert mikið að leigja þær og þetta er bara svona kjörið tækifæri til að sjá íslenskar myndir. Ég fæ líka tölvupósta þar sem alls konar hugmyndir eru viðraðar og óskir um myndir lagðar fram." Síðasta fimmtudag var myndin Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason sýnd en á heimasíðu ESN er hægt að nálgast atburði sem félagið stendur fyrir í framtíðinni. Það eru ekki allir sem vita að annan hvorn fimmtudag klukkan hálfsjö eru kvikmyndasýningar fyrir erlenda stúdenta í Öskju. Ása Baldursdóttir nemi í hagnýtri menningarmiðlun sér um þessar sýningar.
Kvöldið byrjar eins og ég sagði áður með því að ég sýni þeim mynd af leikstjóranum og segi frá honum og fleira en eftir myndina eru umræður þar sem fólk úr salnum getur tjáð upplifun sína eða hugmyndir en ég reyni að stýra þeim þannig að allir komist að. Allar myndirnar eru með enskum texta, umræðurnar fara fram á ensku og kynningin líka