Fiskurinn í nærmynd
Fiskurinn er nemendafélag Guðfræði og trúarbragðafr-ðideildar HÍ.
fleiri nemendafélögDröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði
Er óvirkur félagi.
Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.
Já, örlítið.
Maya Staub, þýska.
Nei.
Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.
Er skráður.

Jens Fjalar Skaptason, formaður Stúdentaráðs.
Stúdentaráð hefur á morgun herferð sem beinist gegn yfirvofandi niðurskurði í Háskóla Íslands og opnar formlega vefsíðuna Verjummenntun.is. Jens Fjalar Skaptason, formaður Stúdentaráðs segir vefsíðuna fela í sér gagnrýni á háskólayfirvöld og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hún sé einnig upplýsingaveita fyrir nemendur og almenning um breytingarnar sem fyrirhugaður niðurskurður í Háskóla Íslands hafi í för með sér.
Skorið niður um 7,5 %
Fjárlög stjórnvalda verða kynnt seinna í haust, en Jens segir ráðið hafa fengið að vita að fyrirhugaður niðurskurður á næsta ári næmi 7,5 %. Þegar sú tilkynning barst hafði Stúdentaráð þegar ráðist í undirbúningsvinnu að herferðinni en í vor var fyrirséð að mikið yrði skorið niður.
„Við ákváðum þá að semja skýrslu sem gæfi raunhæfa mynd af ástandinu og koma með tillögur og gagnrýni sem byggðu á henni. Það væri miklu sterkara heldur en að berja bara hnefanum í borðið.”
Nemendur ekki með fulltrúa
Stúdentaráð óskaði eftir því að taka þátt í sérstökum vinnuhóp um aðgerðir vegna niðurskurðarins, en Jens segir að því hafi verið hafnað af háskólayfirvöldum.
Gunnlaugur Björnsson, talsmaður vinnuhópsins, segir helstu markmiðin vera að koma með tillögur að hagræðingu í námsframboði skólans og það sé eingöngu á færi kennara.
„Hópurinn á að gera tillögur um hvar sé hægt að samkenna tvö eða fleiri námskeið þvert á deildir og svið án þess að námskeiðin rýrni. Það er á starfssviði kennara að taka ákvarðanir um faglegt innihald námskeiða" segir hann. „Það er því ekki augljóst hvernig kraftar og þekking stúdenta nýtist vinnu af þessu tagi."
Sýna leikin myndskeið
Vefsíðunni skiptir Stúdentaráð upp í þrjú svæði. Jens segir að á einu svæðinu megi finna fréttaveitu um stöðu mála sem verði uppfærð reglulega. Skýrslan sem unnin var af sjö fulltrúum Stúdentaráðs, verði birt á öðru svæði. Þriðja svæðið hafi svo að geyma nokkur myndskeið sem verði einmitt frumsýnd á morgun.
„Þetta eru nokkur leikin myndskeið sem eiga að sýna hugsanlegar afleiðingar niðurskurðarins. Í einu myndskeiðinu koma síðan fram þekktir einstaklingar sem og nemendur sem tjá sig um hvað sé mikilvægast í menntakerfinu.”
Fagnar þátttöku nemenda
Skýrslunnar og frekari frétta er svo að vænta eftir helgi. Jens vonar að vefsíðan veki athygli meðal nemenda og almennings, sem og þeirra sem geti haft áhrif. Hann hvetur nemendur til þess að láta í sér heyra og hafa samband við Stúdentaráð ef þeir vilji koma hugmyndum sínum og athugasemdum að.
Sjá nánar á vefsíðunni Verjum menntun.
Skrifað af aea9 aea9@hi.is, þann 30.08.10