Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.
Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.
Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.
Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.
Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.
Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.

Vísindavefurinn fagnar 10 ára afmæli sínu á föstudaginn, þann 29. janúar. Hann
var stofnaður árið 2000 sem tímabundið verkefni Háskóla Íslands í tengslum við ár
Reykjavíkur sem menningarborg Evrópu á sínum tíma en hefur á þeim tíu
árum sem síðan hafa liðið fengið á bilinu 40-50.000 fyrirspurnir.
Á föstudaginn næstkomandi verður haldið málþing í tilefni afmælisins þar sem fjallað verður um vísindamiðlun í ýmsu samhengi. Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins og stendur á milli 14-16 á föstudag.
Tugþúsundir heimsókna í hverri viku
Spurður um fjölda fyrirspurna sem hafi borist Vísindavefnum frá upphafi segir Jón Gunnar Þorsteinsson, aðstoðarritstjóri vefsins, að það sé erfitt að gefa nákvæma tölu. „Umferð um vefinn hefur aukist í takt við aukna netnotkun fólks frá því að hann var stofnaður. Vefurinn fær um tuttugu þúsund einstaka notendur á viku og hann að jafnaði 15.-20. vinsælasti vefur landsins.“
Þá er fylgni á milli aðsóknar að vefnum og skólaársins. „Það er alltaf aukning á haustin þegar skólarnir byrja og minnkun yfir sumarið og í jólafríinu.“ Að sögn Jóns Gunnars byrji krakkar um 8-10 ára aldur að senda inn fyrirspurnir en 14-15 ára krakkar séu duglegastir við að senda inn spurningar. „Þá eru þau farin að vita nógu mikið til að geta spurt flókinna spurninga. Þau eru líka ófeimin við að spyrja.“
Aðallega starfsfólk HÍ
sem svarar
Jón Gunnar segir að á milli 40-50 þúsund fyrirspurnir hafi borist vefnum frá upphafi og að þegar hafi 8.200 svör verið birt. Þau svari reyndar talsvert fleiri spurningum enda eru margar þeirra þær sömu eða svipaðar.
Það eru aðallega kennarar og framhaldsnemar við Háskólann sem sjá um að svara fyrirspurnunum en einnig fræðimenn um allt land sem ekki eru bundnir HÍ.
Svara öllu nema aldri Brad Pitts
Að sögn Jóns Gunnars hefur aldrei komið fyrir að ekki hafi verið hægt að svara fyrirspurn. Alltaf sé hægt að segja eitthvað af viti um spurningarnar. Þannig hafi vefurinn svarað spurningum eins og „hver er erfiðasta spurning í heimi?“, „er guð til?“ og „af hverju?“
Vefurinn svari þó ekki öllum spurningum. „Beinum staðreyndaspurningum sem koma vísindum ekki við er ekki svarað. Aldur Brad Pitts er til dæmis ekki mjög áhugaverð spurning fyrir Vísindavefinn.“
Skrifað af kjk9 kjk9@hi.is, þann 26.01.10