Háskóli Íslands student.is

AIESEC

AIESEC

Opnunartími skrifstofnu:

Skrifstofan er opin alla virka daga frá

10:00- 18:00

AIESEC

Heimilisfang

Sími

Netfang

 

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Bæta við færsluPrinter-friendly version

Hvað er AIESEC?

div class="content frettir">

AIESEC eru stærstu alþjóðlegu stúdentareknu samtök í heiminum. Samtökin eru vettvangur leiðtogaþjálfunar og veita stúdentum tækifæri til að öðlast annars fágæta reynslu á sínu sviði samhliða háskólanámi sem gefur þeim forskot þegar komið er út í atvinnulífið.

AIESEC býður upp á rúmlega 6.500 leiðtogastöður um allan heim og heldur um 350 ráðstefnur ár hvert fyrir meðlimi AIESEC sem nú eru um 28.000 í yfir 1100 háskólum víðsvegar um heiminn. Ásamt því reka samtökin starfaskipti fyrir stúdenta og nýútskrifaða, sem gefur þeim tækifæri á að búa í öðru landi og öðlast starfsreynslu á alþjóðlegum grundvelli.

Á Íslandi eru tækifæri fyrir mikinn vöxt og metnaðarfullir og kraftmiklir einstaklingar eru ávallt velkomnir í samtökin. Þar geta þeir stækkað tengslanet sitt vegna þess að með því einu að gerast meðlimur í AIESEC er maður, þótt ótrúlegt sé, í raun og veru komin með 23.000 nýja vini á einum degi.

Starfsemi AIESEC á Íslandi fer að mestu fram á höfuðborgarsvæðinu þar sem margvíslegir atburðir eru skipulagðir yfir árið og hægt að sækja um ýmsar leiðtogastöður. Þar má nefna svæðisstjórnir í Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur, landstjórn AIESEC, stjórn Framadaganefndar sem vinnur að Framadögum ár hvert ásamt ýmsum öðrum embættum.

Meðlimir AIESEC fá tækifæri til að sækja leiðtogaráðstefnur erlendis og kynnast þar með áhugaverðu fólki með ólík áhugamál og skoðanir sem eiga það þó sameiginlegt að hafa áhuga á heimsmálum, stjórnun og leiðtogastarfi. AIESEC leitast eftir því að draga það besta fram hjá einstaklingum, fyrirtækjum og samfélaginu í heild.

share

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

FNÍS er félag sjúkraþjálfun-arnema. Lukkudýr félagsins er beinagrindin Hreyfingur.

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...