Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is

Hvernig leggst komandi skólaár í þig?

Brynjar Karl Karlsson, nemi á 1. ári í vélaverkfræði: Mjög vel. Þetta er spennandi.

Súsanna Gottsveinsdóttir, nemi á 3. ári í heimsspeki og bókmenntafræði: Rosalega vel.

Örn Erlendsson, nemi á 2. ári í umhverfis- og byggingaverkfræði: Bara rosalega vel.

Hvernig leggst komandi skólaár í þig?

Kati Temonen, skiptinemi í stjórnmálafræði: Mjög vel, ég er mjög spennt.

Óskar Smárason, nemi á 1. ári í vélaverkfræði: Bara þokkalega.

Sunna Þrastardóttir, nemi á 2. ári í heimsspeki: Bara mjög vel. Líst vel á þetta.


Printer-friendly version

Glerkastalinn: minningar

Glerkastalinn MP3

Glerkastalinn er eftir Jeannette Walls sem er 48 ára bandarískur blaðamaður og rithöfundur. Hún fæddist í Pheonix, Arizona og útskrifaðist úr Barnard háskólanum í New York. Hún býr núna í Virginíu og er gift rithöfundinum John Taylor. Jeannette skrifaði slúðurdálk fyrir MSNBC.com  en hætti því og vinnur nú í fullu starfi sem rithöfundur. 1 Glerkastalinn er fyrsta bók Jeannette. Hún kom út árið 2005 og í íslenskri þýðingu Önnu Maríu Hilmarsdóttur á þessu ári.

Glerkastalinn er saga af uppvaxtarárum Jeannette víðsvegar í Bandaríkjunum. Bókin er byggð á ævi hennar, en hún er ein af fjórum systkinum. Segir bókin frá þeirra lífi frá sjónarhorni Jeannette og er fyrstu persónu frásögn. Bókin byrjar á því þegar Jeannette sér móður sína róta í rusli í New York borg og í framhaldi af því hefur hún samband við móður sína og hittir hana. Við þessa endurfundi spyr Jeannette móðir sína hvernig hún ætti að útskýra fyrir fólki það líf sem hún lifir, því Jeannette skammast sín fyrir að eiga móður sem er heimilislaus en hún segir Jeannette að segja fólki sannleikann.

Næsti kafli byrjar á endurliti höfundar; hún er þriggja ára og skaðbrennir sig við að sjóða pylsur, en hún ber ör af því alla sína ævi. Hún heldur áfram frásögninni og segir frá uppvexti sínum með foreldrum og systkinum þar til hún fer að heiman og menntar sig.

Uppvöxtur Jeannette er mjög frábrugðinn uppvexti flestra annarra barna því foreldrar hennar voru mjög kærulaus varðandi reglur og aðhald á heimilinu. Faðir hennar, Rex, var ábyrgðarlaus alkóhólisti sem hélt ekki vinnu og móðir hennar, Rose Mary, hafði engan áhuga á uppeldi eða vinnu og eyddi sínum tíma í að mála listaverk.

Faðir Jeannette sagði fjölskyldunni ávallt að lifnaður þeirra væri tímabundið ástand og að hann ætlaði að byggja glerkastala sem þau gætu búið í, en hann var aldrei byggður, og var það eitt af mörgum loforðum og ætlunum sem brugðust. Móðir hennar trúði því að það væri gott fyrir börn að hafa frelsi til að gera það sem þau lysti, þau styrktust á því og læra af eigin mistökum, en þrátt fyrir þá reglu virtust foreldrar hennar ekki læra af sínum eigin mistökum. Jeannette og systkini hennar þurftu því mikið að sjá um sig sjálf og fóru stundum gegnum heilu dagana án matar vegna fátæktar.

Foreldrar hennar fluttu mikið á milli staða og drógu börnin með sér á vit ævintýranna, eins og þau kölluðu það. Líf þeirra var mjög erfitt og þurftu systkinin að þola margt frá foreldrum sínum en Jeannette hafði óbilandi trú á föður sínum. Hún segir sjálf í viðtali sem birtist á heimasíðu Book Videos að skemmtilegasta minning sín af föður sínum sé þegar hún og systkini hennar mega velja sér stjörnu á himnum í jólagjöf. 

Þetta er hugljúf minning sem hún á af föður sínum og sýnir að allt er leyfilegt hjá honum og það eru enginn takmörk, sem Jeannette fær því miður að finna fyrir seinna á ævi sinni. Fremst í bókinni er mynd af foreldum Jeanette á brúðkaupsdaginn þeirra. Þau eru í fínum brúðarfötum og sýnir þetta að þrátt fyrir erfiða ævi Jeannette vegna foreldra sinna þykir henni enn vænt um þau. Því ef engin ást væri til staðar hefi hún getað sett mynd af þeim í tötralegum fötum og heimilislausum.

Bókin skiptist í nokkra hluta og innan þeirra er kaflaskipting. Fyrsti og seinasti hluti bókarinnar fjallar um fullorðinsár Jeannette. Þeir gerast á mjög stuttum tíma og halda frásögninni saman, en hinir hlutar bókarinnar tengjast þeim stöðum, bæjum og borgum sem fjölskyldan hefur búið á og segja frá nokkrum árum í lífi Jeannette og fjölskyldu hennar. Frásögnin er línuleg frá fyrstu minningu Jeannette og hún flakkar ekki á milli atburða í lífi sínu heldur segir frá þeim í aldursröð. Glerkastalinn er ævisaga en er byggð upp eins og skáldsaga að því leytinu til að Jeannette segir frá atburðum í lífi sínu eins og hún man þá sjálf, þetta eru minningar hennar.  

Sjónarhorn frásagnarinnar er mjög áhugavert í bókinni. Bókin byrjar þegar Jeannette er þriggja ára gömul og endar í fullorðinsárum en sjónarhornið fylgir aldri hennar. Þegar hún er þriggja ára er sjónarhornið frá þriggja ára gamalli Jeannette, þegar hún er tíu ára er frásögnin frá því sjónarhorni og þannig heldur það áfram út bókina.

Ævi hennar virðist hafa verið mjög ævintýraleg framan af. Frásögnin er mjög barnsleg í fyrri hluta bókarinnar en þegar líður á bókina uppgötvar hún að lífið er ekki eins mikið ævintýri og hún hélt. Raunveruleikinn birtist henni smám saman og hún sér foreldra sína ávallt í betra og betra ljósi og öll ævintýrin sem foreldrar hennar leita uppi er í raun flótti þeirra undan ábyrgð gagnvart börnum sínum, sjálfum sér og samfélaginu. Þegar bókin er lesin uppgötvar maður þetta samhliða Jeannette. Þrátt fyrir að margt sem viðgengst á barnsaldri hennar sé mjög óábyrgt af foreldrum, líður manni eins og líf fjölskyldunnar sé skemmtilegt og hefur trú á foreldrum hennar. Sú trú er fljót að hverfa því lengra sem lesið er inn í bókina.

Þetta er átakanleg ævisaga. Ævi Jeannette var henni mjög erfið og þurfti hún og systkini hennar að ganga í gegnum margt sem venjulegir foreldrar myndu aldrei óska börnum sínum. Jeannette segir líka sjálf að hún hafi verið alveg viss um að ef hún myndi skrifa bók um ævi sína og gefa út, myndi hún missa vinnuna og vini sína. Hún komst þó að því að það gerðist ekki. Bókin fór á metsölulista í Bandaríkjunum þegar hún kom út þar og situr núna í 6. sæti af vinsælustu bókum gefnar út af Forlaginu þessa vikuna.

Höfundur: Bryjna Dís Guðmundsdóttir

 

""

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsér-fræðingur er maður vikunnar

Heillandi rannsóknarstörf

Þau Sara Sigurbjörnsdóttir líffræðingur og Marteinn Þór Snæbjö...