Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Printer-friendly version

Reykjavík - Rotterdam. Ekta íslenskur krimmi

Kvikmyndin Reykjavík - Rotterdam fjallar um Kristófer (leikinn af Baltasar Kormáki), seinheppinn smákrimma sem er að reyna að koma lífi sínu í réttar skorður eftir stutta viðkomu í fangelsi. Vinnan hans sem öryggisvörður gefur þó ekki nóg í aðra hönd til að láta enda ná saman og fjölskyldan rétt skrimtir. Þegar Arnór, mágur Kristófers (leikinn af Jörundi Ragnarssyni), lendir í vandræðum vegna vanskila á smyglsendingu sem hann bar ábyrgð á, leitar hann fyrst til Kristófers til aðstoðar, en Kristófer er tregur til enda er honum mikið í mun að halda sér á beinu brautinni í þetta skiptið.

Steingrímur, vinur hans (leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni), sannfærir hann þó um að ein smyglferð í viðbót sé einmitt það sem hann þarf til að koma lífi sínu á réttan kjöl og reddar honum vinnu á sama flutningaskipi og Arnór. Þar reyna þeir að skipuleggja sprúttsmyglið í samvinnu við aðra meðlimi áhafnarinnar án þess að vekja grunsemdir skipstjórans. Leið þeirra liggur til Rotterdam, en ýmislegt hefur breyst frá seinustu ferð Kristófers, og þeir félagar komast á kant við hollenska glæpona þegar í ljós kemur að Arnór hefur svikið þá fyrir eigin tilgang. Söguþráðurinn flækist enn frekar á heimleiðinni, þegar Kristófer fer að gruna að Steingrímur hafi leitt hann í gildru í þeim tilgangi að ná ástum Írisar, eiginkonu Kristófers (leikin af Lilju Nótt Þórarinsdóttur).

Fagmennska Óskars sem leikstjóra skín í gegn í myndinni. Öll samtöl eru einkar trúverðug og hefur leikstjóranum tekist að halda leikurunum frá ofur-leikrænum tilburðum, sem íslenskir leikarar virðast svo oft hneigjast til. Flæði myndarinnar er líka mjög gott, allar skiptingar milli atriða eru fagmannlegar og leiða áhorfandann vel í gegnum atburðarásina. Einnig er útlit myndarinnar sannfærandi, þar sem lýsing og umhverfi er mjög ,,íslenskt". Handritið er greinilega vel útpælt og minnir myndin um margt á dönsku glæpamyndir Lasse Spang Olsens, I Kina Spiser de Hunde og Gamle Mænd i Nye Biler, þar sem húmor og seinheppnir glæpamenn halda áhorfandanum við efnið. Mynd Óskars er þó frábrugðin þeim að því leyti að húmorinn er duldari og svartari, sem kemur glöggt í ljós í atvikinu með Pollock málverkið og þeirri staðreynd að smyglvarningurinn er áfengi. Leikararnir standa sig allir afburða vel í hlutverkum sínum og gefur það góðan vitnisburð um ágæti Óskars sem leikstjóra.

Myndin heldur áhuga áhorfandans allan tímann með spennu og hraðri atburðarás, þar sem svartur húmor fær að njóta sín í söguþræðinum. Ánægjulegt er að sjá ekta íslenskan krimma sem getur staðið undir almennum kröfum um góða spennumynd og segja má að með þessari mynd hafi Óskar hækkað markið fyrir verðandi kvikmyndagerðarmenn Íslands.
Leikstjóri: Óskar Jónasson Handrit: Óskar Jónasson og Arnaldur Indriðason

Leikarar: Baltasar Kormákur, Ingvar E. Sigurðsson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafur Darri Ólafsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson

Tónlist: Barði Jóhannsson

Lengd: 90 mín.

 Höfundur: Eva Hafsteinsdóttir 

Nemandi í námskeiðinu Ritdómar og
bókmenntagagnrýni.

 

share

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Torfhildur: „A book commits suicide every time you watch Jersey Shore“.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...