Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Bæta við færsluPrinter-friendly version

Viðurkenningar fyrir þrekvirki

Þorgerður Einarsdóttir, dósent í kynjafræði við HÍ og Katrín Anna Guðmundsdóttir, meistaranemi og stundakennari við HÍ hlutu jafnréttisviðurkenningu Stígamóta síðastliðinn föstudag, sem þá var veitt í fyrsta sinn. Alls fengu fimm konur viðurkenningu fyrir að hafa unnið þrekvirki fyrir þjóðina; allar á ólíkum sviðum og með ólíkum hætti eins og fram kom hjá Guðrúnu Jónsdóttur, talskonu Stígamóta við afhendingu verðlaunanna í Iðnó. Guðrún sagði Þorgerði fá verðlaunin „fyrir að ala upp fræðifólk framtíðarinnar" því hún haldi utan um kynjafræðina í HÍ og „fyrir einstaka þekkingu og færni í að beita hinu mikilvæga verkfæri kynjafræði í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi." Katrín Anna sem bæði nemur og kennir í kynjafræði við HÍ fær viðurkenningu „sem ötul talskona femínisma á Íslandi" en jafnframt fyrir „þekking, visku og hugrekki. Fyrir að ganga á undan og teygja mörk hins leyfilega í baráttunni fyrir réttlátara þjóðfélagi."

Viðurkenningarnar voru afhentar á málstofu um baráttu gegn kynferðisofbeldi í Evrópu, en Stígamót urðu nýlega aðilar að European Women's Lobby. Þannig hafa Stígamót eignast fulltrúa í þrjátíu manna sérfræðingateymi á vegum samtakanna í ofbeldismálum. Þetta eru stærstu regnhlífasamtök í Evrópu og innan þeirra vébanda starfa yfir tvö þúsund kvenna- og jafnréttissamtök sem leggja áherslu á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi.

Jafnréttisviðurkenningar fengu auk Þorgerðar og Katrínar Önnu Margrét Steinarsdóttir, fyrir ötult starf í þágu Stígamóta, Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður fyrir að færa hugmyndafræði og áherslur Stígamóta inn í sal Alþingis og Matthildur Helgadóttir, fyrir verkefni sitt Óbeislaða fegurð, fegurðarsamkeppni á Vestfjörðum sem sýnir fram á afkáraleika þröngra kynímynda.

share

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræðum, er meðal elstu nemendafélaga Háskóla Íslands.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...