Í blíðu og stríðu

 ,,Vaka velur fólk eftir verðleikum,” segir Hildur Björnsdóttir formaður Stúdentaráðs. ,,Þetta hjálpar ekki upp á sandkassaorðsporið sem fer af Stúdentaráði,” segir Sigurður Kári Árnason fulltrúi Röskvu.

Jóhann Már Helgason var mánudaginn 2. mars síðastliðinn ráðinn framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Íslands. Hann er kærasti formanns Stúdentaráðs.

Umdeild ráðning

Röskva hefur mótmælt ráðningunni harðlega. Sigurður Kári segir hana vera ömurlega í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu þegar áhersla er á að koma í veg fyrir spillingu og einkavinavæðingu. ,,Samkvæmt lögum Stúdentaráðs á ráðning framkvæmdastjóra að fara faglega fram,” segir Sigurður Kári. ,,Hér blasa við hagsmunaárekstrar. Það gengur ekki þegar fólk á að vinna saman að réttinda- og hagsmunabaráttu. Þau eru komin í launað starf af stúdentum og þurfa að geta temprað hvort annað. Ég sé ekki hvernig þau eigi að geta það”, segir hann.

Að sögn Hildar var samróma álit meirihluta þeirra sjö fulltrúa Stúdentaráðs sem stóðu að ráðningunni að Jóhann væri hæfastur í starfið. Hún hafi þó ekki komið að ráðningunni heldur óskað eftir varamanni í sinn stað þegar ljóst var að Jóhann myndi sækja um stöðuna. Því geti hún ekki fullyrt um allar ástæður ráðningarinnar enda sé það trúnaðarmál.

Hildur segist hafa kynnst Jóhanni í gegnum stúdentapólitíkina og að þau hafi  unnið mjög vel saman innan Vöku og Stúdentaráðs. Þau hafa verið saman í tæplega eitt ár. ,,Samband okkar á ekki að skipta máli ef hæfni er fyrir hendi og maður er viss um að hann eigi eftir að vinna gott starf”, segir hún. ,,Vaka hafur alltaf staðið fyrir því að velja fólk ekki út frá kyni, kynþætti, þjóðerni eða hverjir makar þeirra eru heldur út frá hæfni.”

Spurning um hæfni

,,Jóhann var eini umsækjandinn sem uppfyllti allar hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu um framkvæmdastjóra Stúdentaráðs”, fullyrðir Hildur. ,,Hann hefur afburða reynslu af störfum í Stúdentaráði og hefur setið í nefndum og ráðum og hefur starfað sem framkvæmdastjóri.”

Sigurður Kári segist telja að auglýsingin hafi verið sniðin að ferilskrá Jóhanns. ,,En ég er ekki einu sinni að kvarta undan því. Því að þrátt fyrir það var hann ekki hæfastur umsækjenda um starfið.” segir hann. Það hafi verið Júlía Þorvaldsdóttir meistaranemi í mannauðsstjórnun sem hefur verið framkvæmdastjóri Stúdentaráðs KHÍ undanfarin tvö ár og sat áður í stjórn. ,,Það er vanvirðing við háskólasamfélagið að aðili sem lokið hefur háskólagráðu og hefur tveggja ára starfsreynslu í nákvæmlega sama starfi sé ekki ráðinn.”

Gat byrjað strax

Hildur segir að Jóhann hafi getað byrjað strax og það hafi haft áhrif. Það hafi verið óljóst hvenær Júlía gæti hafið störf. Hún segir að Júlía sem gegnir hálfu starfi framkvæmdastjóra Stúdentaráðs KHÍ fram í september hafi stungið upp á því að hún myndi taka við starfinu í haust. Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs sé ráðinn í fullt starf eitt ár í senn og það hafi ekki þótt heppilegt að láta annan aðila gegna því starfi fram í september.

Aðspurð segist Júlía hafa geta byrjað strax, þess vegna hafi hún sótt um starfið. En það sé rétt að hún hafi í viðtali lagt fram tillögu um að hún myndi taka við starfinu í haust. Hún hefði þó getað fengið sig lausa ef eftir því hefði verið óskað. Hún segist hvorki tengjast Vöku né Röskvu.

Þriðji umsækjandinn sótti líka um starf framkvæmdastjóra í fyrra en fékk ekki. Því mótmælti Vaka þá. ,,Þeir buðu fram sinn einstakling gegn okkar einstaklingi,” segir Sigurður Kári. ,,Nú þurfa þeir að éta það ofan í sig.”

Okkar maður

Það er algengt og hefur viðgengist að að framkvæmdastjóri Stúdentaráðs komi úr röðum þeirrar fylkingar sem situr að völdum hverju sinni. Sigurður Kári játar að meirihluti geti komið í gegn hvaða ráðningu sem er, þó svo að hún eigi að vera fagleg. Framkvæmdastjóri þurfi helst að vera tengdur inn í stúdentapólitíkina. Í þessu tilfelli sé þó farið yfir strikið. ,,Trúverðugleiki Stúdentaráðs mun bíða mikla hnekki bæði út á við og inn á við. Við glímum við lélega kjörsókn og fólki finnst þetta skrípaleikur. Þetta undirstrikar það og ég harma þessa ráðningu.”

Hvað gerist svo?

Óvíst er hvort hægt sé að kæra ráðninguna, en Júlía hefur beðið um og fengið formlega skýringu á ráðningu. Hún segist vera að íhuga næstu skref.

Röskva mun að sögn Sigurðar Kára áfram krefjast fullnægjandi svara um forsendur ráðningarinnar og ef þau berast ekki muni Röskva krefjast afsagnar Jóhanns.

,,Við Jóhann höfum starfað saman áður í Stúdentaráði og það hefur ekki skaðað neinn. Ég trúi því að þetta mál eigi eftir að verða grafið innan skamms”, segir Hildur.

 

12. Mars 2009 - 21:16 -- stefan