Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.
Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.
Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.
Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.
Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.
Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.

Á komandi skólaári verða nýir Stúdentagarðar teknir í notkun við Skógarveg 18 - 22 í Reykjavík. Skógarvegur er í Fossvogi, vestanmegin við Borgarspítalann. Hverfið er skjólsælt og gróið og stutt er í verslun og þjónustu.
Strætisvagnar stoppa skammt frá og hjólreiðastígur liggur úr hverfinu, framhjá Öskjuhlíð og Nauthólsvík og meðfram sjónum alla leið á háskólalóðina. Í húsunum, sem eru þrjú talsins, verða samtals 80 íbúðir. Þar af verða 34 tveggja herbergja (60 m2) og 46 þriggja herbergja (72 m2) fjölskylduíbúðir. Íbúðirnar verða teknar í notkun í desember 2009 og í janúar 2010. Til að sækja um íbúð við Skógarveg skal sótt um tveggja eða þriggja herbergja fjölskylduíbúð og verður leiguverð sambærilegt öðru fjölskylduhúsnæði á görðum. Myndir og teikningar af íbúðunum verða settar á vefinn fljótlega.
Skrifað af pgm1 pgm1@hi.is, þann 01.06.09